919. spurningaþraut: „Djúpur er minn hugur eins og hafið ...“

919. spurningaþraut: „Djúpur er minn hugur eins og hafið ...“

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  „Djúpur er minn hugur eins og hafið; / gat samt aldrei hugsað mig til þín. / Sátum föst í sama hug­ar­fari, / sem byrgði okkur sýn, ástin mín ...“ Hvað heitir það lag sem byrjar svo?

2.  Og hver samdi það og flutti?

3.  Nær allar munka- og nunnu­reglur kenna sig við upp­hafs­mann sinn eða -konu. Ein regla kennir sig þó við fjall og svo vill til að eitt klaustra hennar er á Íslandi. Hvað heitir þessi regla?

4.  Og hvar á Íslandi er klaustur hennar?

5.  Hvaða villt spen­dýr verða flestum mönnum að bana í Afríku?

6.  Franz Jósef var keis­ari í ríki einu ansi lengi, eða frá 1848 til 1916. Hvaða ríki? Þeir sem þekkja eft­ir­mann hans með nafni fá sér­stakt keis­ara­stig!

7.  En hvaða landi til­heyrir Franz Jósef-land?

8.  Hvaða Nóbels­höf­undur skrif­aði skáld­sög­urnar Útlend­ing­inn, Pláguna og Fallið?

9.  Í hvaða borg í Norður-Ameríku er Frels­is­styttan?

10.  Hvaða land í Evrópu er oft kallað Helvetia þar um slóðir?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér eru systur tvær. Hvað heitir pabbi þeirra? Svo er systra­stig fyrir að muna hvað þær báðar heita!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hafið er svart. Sjá og heyra má lagið hér.

2.  Jónas Sig.

3.  Karmel.

4.  Hafn­ar­firði.

5.  Flóð­hestar.

6.  Aust­ur­ríki, Aust­ur­ríki-Ung­verja­landi, Habs­borg­ara­rík­inu — þetta er allt rétt. Eft­ir­maður hans hét Karl.

7.  Rúss­landi.

8.  Albert Camus.

9.  New York.

10. Sviss.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er marglytta.

Á neðri mynd­inni eru syst­urnar Eugenie og Beatrice Andr­és­dætur her­toga.

Andrés og dætur hans.
Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár