920. spurningaþraut: Hvar er skáklistin upprunnin, og fleira!

920. spurningaþraut: Hvar er skáklistin upprunnin, og fleira!

Þema­þrautin snýst um skák.

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða bar­átt­uglaða skák­mann má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Árið 2020 var frum­sýnd banda­rísk sjón­varps­s­ería sem fjall­aði um unga stúlku sem reyn­ist gædd miklum skák­hæfi­leikum. Serían sló í gegn og jók mjög áhuga á skák. Hvað kall­að­ist þessi sería?

2.  Hver er öfl­ug­asti tafl­mað­ur­inn á skák­borð­inu?

3.  Hvað hét fyrsti stór­meist­ari Íslend­inga í skák?

4.  Hvar í Reykja­vík fór heims­meist­ara­ein­vígið í skák fram sum­arið 1972?

5.  Margir lista­menn hafa haft mik­inn áhuga á skák. Rit­höf­undur, sem fékk m.a.s. Nóbels­verð­launin 1969, birti í einni skáld­sögu sinni frá 1938 skák sem tvær per­sónur hans, Murphy og Ender, tefldu og er óhætt að segja að sú skák hafi verið ansi óvenju­leg, og er þá vægt til orða tekið. Hvaða höf­undur var þetta? 

6.  Á árunum 1984-1990 háðu tveir sov­éskir skák­menn fimm heims­meist­ara­ein­vígi sín á milli. Hvað hétu þeir báðir?

7.  Frá hvaða landi er núver­andi heims­meist­ari í skák, Carlsen að nafni?

8.  Fjór­menn­inga­klíkan var orð sem gjarnan var notað um fjóra öfl­uga íslenska skák­menn sem komu fram upp úr 1980. Þeir voru Helgi Ólafsson, Margeir Pét­urs­son, Jóhann Hjart­ar­son og ... hver?

9.  Hvaða þjóð á flesta stór­meist­ara í skák?

10.  Þótt margt sé á huldu um upp­runa skák­list­ar­innar eru flestir fræði­menn á því að hún sé runnin frá leik sem þró­að­ist fyrir 1.500 á til­teknu svæði og nefnd­ist Chaturanga. En á hvaða svæði?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er hér við tafl­borðið, öfl­ug­ust kvenna í langan tíma?

*** 

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Queen's Gambit, Drottn­ing­ar­bragð.

2.  Drottn­ingin.

3.  Friðrik Ólafsson.

4.  Í Laug­ar­dals­höll­inni.

5.  Beckett.

6.  Karpov og Kasparov.

7.  Noregi.

8.  Jón L. Árnason.

9.  Rússar.

10.  Indlandi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Victor Korchnoi.

Á neðri mynd­inni er Judit Polgar.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár