921. spurningaþraut: Hvaða fjöll í Evrópu hækka mest?

921. spurningaþraut: Hvaða fjöll í Evrópu hækka mest?

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin hér að ofan er kölluð Fæðing ... ja, fæð­ingar hverrar eða hvers?

Svo fæst Renisans-stig fyrir að muna nafn mál­ar­ans.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað er „svarta mamba“?

2.  Hver er stærsti, já langstærsti kirt­ill manns­lík­am­ans?

3.  Við hvaða íþrótt á skamm­stöf­unin NBA?

4.  Árið 1991 fannst í Ötztal-Ölpunum í Aust­ur­ríki lík manns sem ber­sýni­lega hafði verið myrtur með boga­skoti. Enginn veit hver myrti hann, né hver hann var í raun og veru, þótt líkið hafi verið vel varð­veitt og síðan rann­sakað í þaula. Líkið er því yfir­leitt kallað Ötzi í höf­uðið á fjöll­unum þar sem mað­ur­inn fannst. En hvað þykir merki­leg­ast við þennan lík­fund?

5.  Hver lék aðal­karl­hlut­verkið í fyrstu tveimur Term­inator-mynd­unum?

6.  Í hvaða landi er borgin Vancouver?

7.  Kristrún Frosta­dóttir er nú tekin við sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Áður en hún fór út í póli­tík starf­aði hún í banka. Hvaða banka?

8.  Hvaða fjall­garður í Evrópu mun hækka mest næstu 100 árin? Eru það Alpa­fjöllin — App­enína­fjöllin — Karpata­fjöllin — eða Skand­in­av­íu­fjöllin? 

9. Hvernig er blóð kol­krabba á lit­inn?

10.  The Musalman heitir elsta og senni­lega eina hand­skrif­aða dag­blaðið sem gefið er út í heim­inum. Það er bless­un­ar­lega ekki nema fjórar síður en skraut­rit­arar skrifa það vand­lega upp á hverjum degi og svo er það fjöl­ritað og prentað og dreift á kvöldin. Í hvaða landi er The Musalman gefið út?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er skjá­skotið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Eit­urslanga.

2.  Lifrin.

3.  Körfu­bolta. NBA er banda­ríska körfu­bolta­deildin í karla­flokki.

4.  Líkið er mörg þús­und ára gam­alt.

5.  Arnold Schwarzenegger.

6.  Kanada.

7.  Kviku.

8.  Skand­in­av­íu­fjöllin á mótum Sví­þjóðar og Noregs. Þau eru enn að hækka eftir að álagi vegna burt­horfinna ísald­ar­jökla létti fyrir 10 þús­und árum. Hækkunin er að vísu innan við senti­metri á ári, en næstu 10 þús­und árin gætu þau hækkað um 400 metra.

9.  Blátt.

10.  Á Indlandi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Mál­verkið nefn­ist Fæðing Venusar, og málar­inn hét Botticelli.

Skjá­skotið hið neðra er úr Nútím­anum eða Modern Times. Leikstóri og aðal­leik­ari var Chaplin.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár