918. spurningaþraut: Kökugerðarmaður tekur ... hvað?

918. spurningaþraut: Kökugerðarmaður tekur ... hvað?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða bygg­ing er þetta?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  „Þegar pip­ar­kökur bak­ast, köku­gerð­ar­maður tekur fyrst af öllu steik­ar­pott­inn og eitt kíló ...“ af hverju?

2.  Masjid al-Haram heitir helg­asta moska múslima. Í hvaða borg er hún?

3.  Í miðri þess­ari mosku er að finna sér­stakan helgi­dóm og þar mun vera ævaforn hlutur sem er í sjálfu sér ekki mjög guð­legur en hefur í huga múslima orðið tákn fyrir íslam. Hvers konar hlutur er þetta?

4.  Johannes Adam Ferdin­and Alois Josef Maria Marco d'Aviano Pius heitir karl nokkur fullu nafni. Í hvaða ríki er hann þjóð­höfð­ingi um þessar mundir?

5.  Frá hvaða landi kemur parmesan-ostur?

6.  Hvað hét höf­undur skáld­sög­unnar Maður og kona?

7.  Hversu marga vængi hefur býfluga?

8.  Fyrsta sin­fónía Mozart er Sinfónía nr. 1 í E♭-dúr, K. 16. Hvað var hann gam­all þegar hann samdi hana? Hér má muna einu ári til eða frá.

9.  Á árunum 1952-1960 geis­aði svokölluð Mau Mau upp­reisn í einni af nýlendum Breta sem krafð­ist sjálf­stæðis. Upp­reisn­ar­menn voru ekki neinar englar en Bretar brugð­ust líka við af gríð­ar­legri hörku. Í hvaða nýlendu — og núver­andi ríki — var þessi upp­reisn?

10.  Tíu í hund­rað­asta veldi er mjög stór tala. Hún hefur enda sér­stakt nafn í stærð­fræð­inni og laust fyrir árið 2000 var nýtt fyr­ir­tæki nefnt eftir þess­ari tölu, og átti nafnið að gefa til kynna að tækni­lausn fyr­ir­tæk­is­ins byði upp á nær ótelj­andi mögu­leika. En þó var nafnið staf­sett svo­lítið öðru­vísi en heitið á töl­unni, og fer tvennum sögum af því hvort það hafi stafað af mis­tökum eða ásetn­ingi. Altént sigr­aði fyr­ir­tækið heim­inn. Hvað heitir þetta fyr­ir­tæki? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi karl?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Margarín.

2.  Mekka.

3.  Loft­steinn, eða brot úr loft­steini.

4.  Liechtenstein. Fursti þessi gengur yfir­leitt undir nafn­inu Hans-Adam.

5.  Ítalíu.

6.  Jón Thorodd­sen.

7.  Fjóra.

8.  Hann var átta ára, svo rétt er 7-9.

9.  Keníu.

10.  Google. Talan er kölluð „googol“.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Balmoral-kast­ali í Skotlandi, aðsetur bresku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar þegar hún dvelst í Skotlandi.

Á neðri mynd­inni er Sigurður Sveins­son hand­bolta­kappi.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
2
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár