908. spurningaþraut: Hvar var Alexander 1. kóngur?

908. spurningaþraut: Hvar var Alexander 1. kóngur?

Fyrri auka­spurn­ing!

Hér má sjá írska konu um 1900 vinna við til­tekið verk­færi. Svipuð, en ekki alveg eins verk­færi voru notuð hér á landi. Hvað kall­ast þetta verk­færi?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða leik­hús­sal, tón­leika­sal, óperu­sal á Íslandi rúm­ast flestir áhorf­endur?

2.  Hver sendi frá sér tvær plötur sam­tímis árið 2005 — Ást, og Í sex skrefa fjar­lægð frá Paradís?

3.  Hrunið marg­fræga á haust­dögum fyrir rúmum ára­tug hófst þegar stjórn­ar­for­maður banka eins gekk á fund Seðla­banka Íslands og bað um neyð­ar­að­stoð. Hvaða ár var þetta?

4.  En um hvaða banka var þarna að ræða?

5.  Einmitt um það leyti var íslenska utan­rík­is­þjón­ustan önnum kafin við til­tekið verk­efni sem farið var af stað með nokkrum árum fyrr. Ísland sótt­ist sem sé eftir ... hverju?

6.  Hvaða byggð var nýlega lögð niður á Laug­ar­vatni?

7.  Hver býr við Para­dísarepla­veg 111?

8.  Latneska orðið fasces merkir sér­staka gerð vanda eða prika sem þjónar eða fylgd­ar­menn helstu emb­ætt­is­manna Róma­veldis gengu um með sem tákn um tign emb­ætt­is­mann­anna. Hvers vegna hafa þessir vendir öðl­ast sér­staka frægð síð­ustu 100 árin?

9.  En hvað þýðir lat­neska orðið faecēs?

10.  Árið 1934 var Alex­ander 1. kon­ungur myrtur þegar hann var í opin­berri heim­sókn í Frakk­landi. Morð­ing­inn var aðskiln­að­ar­sinni í landi kon­ungs og von­að­ist hann til að morðið yrði til þess að landið leyst­ist upp. Ekki varð þó af því fyrr en löngu seinna. Yfir hvaða landi var Alex­ander 1. kon­ungur? 

***

Seinni auka­spurn­ing!

Hver er þessi glað­beitta bar­áttu­kona?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Eldborg í Hörpu.

2.  Bubbi Morthens.

3.  2008.

4.  Glitni.

5.  Sæti í örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna.

6.  Hjól­hýsa­byggð.

7.  Andrés Önd.

8.  Vegna þess að fas­istar tóku að kenna sig við þá.

9.  Kúkur.

10.  Júgóslavíu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Rokkur heitir græjan á efri mynd­inni.

Katrín Odds­dóttir konan á neðri mynd­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár