907. spurningaþraut: Fyrsta mataruppskrift spurningaþrautar!

907. spurningaþraut: Fyrsta mataruppskrift spurningaþrautar!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mynd­inni?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver er syðst af þessum borgum á Bret­landi:  Birming­ham — Cambridge — London — Newcastle — Sund­er­land.

2.  Í hvaða firði er Sauð­ár­krókur?

3.  Guðni Th. Jóhann­es­son gaf fyrir nokkrum vikum út bók. Um hvað?

4.  Hver var leik­hús­stjóri Leik­fé­lags Reykja­víkur 1972-1980 þegar við­kom­andi tók við öðru starfi?

5.  Hvernig er hárið á Barbie á lit­inn?

6.  Fót­bolta­maður frá Úrúgvæ sem spil­aði m.a. með Liverpool var á tíma­bili fræg­ari fyrir að bíta and­stæð­inga sína en skora hjá þeim. Hver er mað­ur­inn?

7.  Jurt sem heitir á lat­ínu Piper nigrum gefur af sér ... hvað?

8.  Þrír dl hveiti, 1 msk sykur, 5 dl mjólk, 1/2 tsk lyfti­duft, 2 egg, 30 g smjör. Sumir bæta svo fáeinum vanillu­dropum út í þetta, aðrir sletta í upp­skrift­ina svolitlu kaffi og pilsner hefur einnig heyrst nefndur. Svo leyfir fólk sér ýmsar sér­viskur aðrar. En hvað kemur svo að lokum út úr þessu?

9.  Hve margir flokkar eiga nú full­trúa á Alþingi Íslend­inga?

10.  Við lok síð­ari heims­styrj­aldar var Þýska­landi skipt upp í nokkur her­náms­svæði. Hve mörg?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Útlínur hvaða lands má sjá hér?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  London.

2.  Skaga­firði.

3.  Land­helg­is­málið, útfærslu land­helg­innar.

4.  Vigdís Finn­boga­dóttir.

5.  Ljóst.

6.  Suárez.

7.  Svartan pipar. Reyndar dugar að segja pipar.

8.  Pönnu­kökur.

9.  Átta.

10.  Fjögur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er Guðrún Eva Mínervu­dóttir. Eins og venju­lega duga tvö skírn­ar­nöfn ef við­kom­andi mann­eskja notar þau bæði, svo Mínervu­dóttir er ekki nauð­syn­legt.

Á neðri mynd eru útlínur Tyrk­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár