906. spurningaþraut: Hvernig fallbeygir maður belju?

906. spurningaþraut: Hvernig fallbeygir maður belju?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða tón­list­ar­mann má sjá hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða lands­hluta er Dala­tangi?

2.  Súleiman hinn mik­il­feng­legi var soldán í hvaða ríki?

3.  Hvernig fall­beygir maður heiti þess dýrs sem í ögn óvirðu­legra máli er kallað belja? Sem sé: Hér er — um — frá — til?

4.  Hvað er hringur margar gráður?

5.  Elsta hús Reykja­víkur sem enn stendur, Aðal­stræti 10, var reist fyrir iðn­fyr­ir­tæki sem fógeti nokkur hafði veg og vanda af að koma upp í Reykja­vík. Hvað hét fóget­inn?

6.  Og hvað voru þessi iðn­fyr­ir­tæki kölluð einu nafni?

7.  En hve gam­alt er húsið því sem næst: 310 ára — 260 ára — 210 ára — 160 ára — 110 ára?

8.  Hver leik­stýrði stór­mynd­inni Everest árið 2015? 

9.  Hvaða vald­hafi hefur ríkt lengst eftir 1900 (fyrir utan kon­ung­borið fólk): Paul Biya, Kamerún — Fidel Castro, Kúbu — Gaddafí, Líbíu — Kim Il-Sung, Norður-Kóreu —  Stalín, Sov­ét­ríkj­unum?

10.  Árið 1966 lenti banda­rísk sprengju­þota í árekstri við elds­neyt­is­vél. Þær voru á flugi yfir sjó skammt frá strönd og þrjár kjarn­orku­sprengjur sem sprengju­þotan flutti lentu á landi upp, rétt hjá þorpi í suð­ur­hluta til­tek­ins lands. Sú fjórða fannst í sjónum nokkrum mán­uðum síðar. Spreng­ing varð í tveimur vopn­anna sem lentu á landi en náði ekki að kveikja sjálfa kjarn­orku­spreng­ing­una. Hvaða land er hér um að ræða? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þau birt­ast gjarnan á skjánum þegar kynna þarf klass­íska tón­list. Hvað heita þau? Annað nafnið dugar, en þið fáið sin­fón­íu­verð­laun ef þið hafið bæði rétt.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Aust­fjörðum.

2.  Tyrk­landi, Ottómana-rík­inu — hvorttveggja er rétt.

3.  Hér er kýr - um kú - frá kú - til kýr.

4.  360.

5.  Skúli Magn­ús­son.

6.  Inn­rétt­ingar.

7.  260 ára.

8.  Baltasar Kormákur.

9.  Fidel Castro.

10.  Spán.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

David Bowie er á efri mynd­inni.

Á þeirri neðri eru Guðni Tómasson og Halla Oddný.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár