905. spurningaþraut: Yasmin, Cloe, Jade og Sasha, Freyja, Frikki og fleiri

905. spurningaþraut: Yasmin, Cloe, Jade og Sasha, Freyja, Frikki og fleiri

Fyrri auka­spurn­ing: Hver er þessi ófögn­uður?

***

Aðal­spurn­ingar:

1. Hvaða íþrótt stundar LeBron James?

2.  Yasmin, Cloe, Jade og Sasha eru einu nafni Bratz. Þær eru líka ... hvað?

3.  Ævintýri Freyju og Frikka — Drottn­ingin af Galapa­gos heitir barna­bók sem kom út á árinu. Önnur bók um þau heitir Á kafi í Kambódíu. Höf­und­ur­inn hefur feng­ist við ótal margt gegnum tíð­ina, leikið, sungið, skemmt börnum og full­orðnum, stýrt sjón­varps- og útvarps­þáttum. Hvað heitir hann?

4.  Þessi höf­undur komst fyrst í sviðs­ljósið sem söngv­ari í vin­sælli gleði­hljóm­sveit sem hét ... hvað?   

5.  Hvaða fram­halds­skóli á Íslandi hefur skamm­stöf­un­ina VMA?

6.  En FÁ, hvaða skóli er það?

7.  Hvað heitir það fyr­ir­tæki sem stendur fyrir umfangs­mestu útgáfu hljóð­bóka á Íslandi og er í náinni sam­vinnu við sænskt fyr­ir­tæki með sama nafni?

8.  Hver var Rudolf Nureyev?

9.  Sigga Dögg er fræð­ingur á ákveðnu sviði sem reglu­lega birt­ist í fjöl­miðlum og gefur ráð og upp­lýs­ingar um sitt fræða­svið og hugð­ar­efni. Hvers konar fræð­ingur er hún?

10.  Borg nokkur við Eystra­salt hefur nokkrum sinnum skipt um nafn. Upp­haf­lega hét byggðin þar Twangste, þá Królewiec en frá 1657 til 1945 hét hún Kön­ings­berg. Við lok seinni heims­styrj­aldar var hún her­numin og skipt um nafn á henni og það nýja nafn ber hún enn og heitir ... hvað?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Imelda Staunton er ein af virt­ari leikkonum Breta. Hvaða hlut­verk er hún að leika á mynd­inni hér að neðan — en afrakstur þeirrar vinnu hefur reyndar ekki enn birst opin­ber­lega.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Körfu­bolta.

2.  Dúkkur.

3.  Felix Bergsson.

4.  Greif­arnir.

5.  Verk­mennta­skól­inn á Akureyri.

6.  Fjöl­braut­ar­skól­inn í Ármúla.

7.  Storytel.

8.  Ball­ett­dans­ari.

9.  Kyn­lífs­fræð­ingur.

10.  Kal­in­ingrad.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Gollum (á íslensku Gollrir) úr Hringa­drótt­ins­sögu.

Á neðri mynd­inni er Staunton að leika Elísa­betu Breta­drottn­ingu.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár