904. spurningaþraut: Tvö aukastig í boði!

904. spurningaþraut: Tvö aukastig í boði!

Auka­spurn­ing númer eitt:

Hvaða fáni er þetta? — Svo er lár­við­ar­stig fyrir að vita hvaða orð standa innan í hvíta borð­anum og ég hef fönd­rað svo snyrti­lega yfir!

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvar á land­inu er Tré­kyllis­vík? Svarið þarf að vera þokka­lega nákvæmt.

2.  Hvaða vin­sæli barna­bóka­höf­undur skrif­aði text­ann í mynda­bæk­urnar Gunn­hildur og Glói, Nú heitir hann bara Pétur og Velkomin heim Hannibal Hansson?

3.  Hver af þessum stígum liggur EKKI yfir eða að Lauga­veg­inum í Reykja­vík? Er það Bar­óns­stígur — Hall­veig­ar­stígur — Klapp­ar­stígur — Vatns­stígur —  eða Vita­stígur?

4.  Lengsta áin í landi einu er um 150 kíló­metra löng og heitir Gudenå. Í hvaða landi er hún?

5.  Til sam­an­burðar er lengsta áin á Íslandi 230 kíló­metra löng og heitir ... hvað?

6.  Dom Pérignon var franskur munkur, uppi um alda­mótin 1700. Hann er ekki kunn­astur fyrir guð­rækni sína, heldur fyrir að hafa þróað til­tekið fyr­ir­bæri — þótt hann hafi ekki fundið það upp. Hvaða fyr­ir­bæri?

7.  Á árunum 2005-2015 voru Spán­verjarnir Xavi og Iniesta mátt­ar­stólpar í ein­hverju öfl­ug­asta fót­boltaliði sög­unnar. Hvaða lið er það?

8.  Hver var leið­togi Banda­ríkja­manna lengst af í síð­ari heims­styrj­öld?

9.  Nafnið Adolf hefur fallið nokkuð að vin­sældum síðan um miðja 20. öld af ástæðum sem ég þarf ekki að til­greina. En hvað skyldi þetta nafn þýða?

10.  Greta Lovisa Gustafs­son fædd­ist 1905 og varð heims­fræg leik­kona. Undir hvaða nafni varð hún fræg?

***

Auka­spurn­ing númer 2:

Á mynd­inni má sjá banda­ríska leikkonu í hlut­verki sínu í sjón­varps­þátta­röð sem gekk 1997-2002 og þótti einkar skemmti­leg. Serían hét eftir per­són­unni sem þessi leik­kona lék. Hvað hét ser­ían?

Og svo er í boði sjón­varps­stig fyrir að muna hvað leik­konan heitir!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Á Ströndum. Á Vest­fjörðum dugar ekki.

2.  Guðrún Helga­dóttir.

3.  Hall­veig­ar­stígur.

4.  Danmörk.

5.  Þjórsá.

6.  Kampavín.

7.  Barcelona.

8.  Franklin Roosevelt.

9.  Aðal­úlfur eða Stríðs­úlfur (Orr­ustu­úlfur). Þið metið sjálf hvort þið kom­ist nógu nálægt merk­ing­unni en „úlfur“ verður að vera.

10.  Greta Garbo.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fáninn er fáni Brasilíu. Og í borð­anum stendur: „Ordem e progresso“ sem er portú­galska og þýðir „regla og fram­farir“.

Sjón­varps­s­er­ían hét Ally McBeal, en leik­konan Calista Flockhart.

***

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár