860. spurningaþraut: Hér er spurt um útdauð dýr

860. spurningaþraut: Hér er spurt um útdauð dýr

Hér eru myndir af útdauðum dýrum.

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað nefn­ist sú útdauða fíla­teg­und sem sést á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað er þetta dýr kallað?

***

2.  En hvað er þetta dýr kallað?

***

3.  Hvaða kjaft­stóra dýr er þetta?

***

4.  Einu sinni voru þetta háþró­uð­ustu dýr Jarðar, eða rétt­ara sagt hafs­ins. Lengstu teg­und­irnar voru 60-70 senti­metra langar. Hvað nefnum við þessi dýr?

***

5.  Hvað er þessi fugl kall­aður? Hann var á hæð við stóran fíl og skugga­mynd af mann­eskju hefur verið sett þarna inn til sam­an­burðar en raunar er talið senni­legt að menn hafi útrýmt fugl­inum.

***

6.  Þessu dýri var útrýmt á 18. öld en hvað köllum við það?

***

7.  Hvaða útdauða dýr hafði þennan risa­kjaft?

***

8.  Þetta dýr — sem aug­ljós­lega er náskylt zebrahesti og oft­ast talið „und­ir­deild“ zebrahestanna — dó út upp úr miðri 19. öld, það síð­asta í dýra­garði í Amster­dam 1883. Hvað kall­ast teg­undin?

***

9.  Hér komið glæsi­legt dýr sem virð­ist hafa þró­ast sem sér­teg­und fyrir tæpum 2 millj­ónum ára þegar ísöld geis­aði í Evrópu en dó svo út þegar ísöld­inni lauk og menn byrj­uðu að sækja inn í hell­ana þar sem dýrið bjó gjarnan. Hvað nefnum við nú dýrið?

***

10.  Sú örsmáa mann­teg­und sem hér sést til hægri — og nútíma­maður teikn­aður til sam­an­burðar — er kennd við eyj­una þar sem einu leif­arnar af þess­ari smáu teg­und hafa fund­ist. Hvað heitir eyjan?

*** 

Og þá er komið að seinni auka­spurn­ingu!

***

Hvað nefn­ist sú útdauða fíla­teg­und sem sést á mynd­inni hér að neðan?

***

5.  

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sverð­tígris­dýr — þótt dýrið sé reyndar ekki náskylt tígris­dýr, þótt katt­ar­dýr sé.

2.  Tasman­íu­tígur — þótt þetta poka­dýr sé enn síður skylt tígris­dýrum.

3.  Grameðla. Þetta er sem sé sjálfur Tyrann­osaurus Rex.

4.  Þrí­brotar — eða tríló­bítar.

5.  Þetta er fílafugl­inn sem bjó á Madaga­skar, lík­lega af teg­und­inni Aepyornit­hi­dae, þótt fugla­fræð­ingar séu reyndar í óða önn að flokka hina ófleygu fugla Madaga­skar upp á nýtt, skilst mér.

6.  Þetta er „sækýr Stellers“ en sækýr dugar.

7.  Hér dugar að segja „hákarl“ en teg­undin er kölluð megaló­don, sem þýðir stór­tanni.

8.  Quagga, eða kvagga.

9.  Hella­ljón.

10.  Flores (við Indónesíu).

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á fyrri mynd­inni er mastodon, eða skögultanni.

Á seinni mynd­inni er mammút, eða loð­fíll.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár