859. spurningaþraut: Þemaþraut um 1. september

859. spurningaþraut: Þemaþraut um 1. september

Í til­efni þess að 1. sept­em­ber er í dag, þá flýti ég þema­þraut­inni um einn dag og spurn­ing­arnar snú­ast allar um 1. sept­em­ber á einn eða annan hátt.

Fyrri auka­spurn­ing:

Karlinn hér í miðið var hand­tek­inn á Íslandi 1. sept­em­ber 1998. Hann varð í kjöl­farið heil­mikil fjöl­miðla­stjarna og kunnur á djamm­inu. Hvað heitir hann?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Þann 1. sept­em­ber 1715 and­að­ist í Frakk­landi kon­ungur sem ríkt hafði í 72 ár og 110 daga, lengur en nokkur annar. Hvað nefnd­ist þessi lang­lífi og dýrð­legi kon­ungur? — og núm­erið verður að vera rétt! 

2.  Annar franskur leið­togi beið mik­inn ósigur á þessum degi löngu síðar, eða 1870. Þá tap­aði her hans orr­ustu gegn Þjóð­verjum þar sem heitir Sedan í Norður-Frakk­landi og fjórum dögum síðar hrökkl­að­ist þessi franski leið­togi úr emb­ætti. Hvað nefnd­ist hann? — og aftur verður núm­erið að vera rétt!   

3.  Þann 1. sept­em­ber 1910 var opn­aður spít­ali í nágrenni Reykja­víkur sem var helg­aður umönnun berkla­sjúk­linga. Hvar er þessi spít­ali?  

4.  Þýska­land var ekki eina ríkið sem réð­ist inn í Pólland 1. sept­em­ber 1939, þau voru tvö. Hvað var hitt?

5.  Auk inn­rásar í Póllands er sér­stök til­skipun Adolfs Hitlers dag­sett 1. sept­em­ber 1939 þótt raunar muni hann hafa skrifað undir hana í októ­ber. Þar er kveðið á um kerf­is­bundin morð á sér­stökum þjóð­fé­lags­hópi og á næstu miss­erum voru tug­þús­und myrt. Aldrei þessu vant, þá mót­mæltu stórir og áhrifa­miklir hópar Þjóð­verja þessum morðum, og til­skip­unin var aft­ur­kölluð tveim árum seinna — þótt morðin héldu áfram í kyrr­þey. Gegn hvaða þjóð­fé­lags­hópi var þess­ari til­skipun beint?

6.  Þann 1. sept­em­ber 1969 var Idris kon­ungur 1. settur af í til­teknu landi og her­for­ingja­stjórn tók við sem mjög skjót­lega þró­að­ist yfir í harðsvírað ein­ræði eins manns. Í hvaða landi hafði Idris verið kóngur?

7.  Þann 1. sept­em­ber 1972 var fisk­veiði­land­helgi Íslands færð út og átti eftir að kosta þorska­stríð. Lögsagan var færð úr 12 sjó­mílum í ... hvað?

8.  Sama dag lauk skák­ein­vígi einu miklu sem fram hafði farið á Íslandi þá um sum­arið. Hverjir átt­ust þar við — og nefna þarf báða!

9.  Á þessum degi árið 1985 fannst til­tek­inn og nokkur stór hlutur á 3.800 metra dýpi í Atl­ants­haf­inu. Fransk/banda­rískur leið­angur var þar á ferð­inni, en hver var hlut­ur­inn?

10.  1. sept­em­ber 1988 varð kona í fyrsta sinn ráðu­neyt­is­stjóri á Íslandi þegar 33 ára kona úr Ólafsvík varð skipuð yfir félags­mála­ráðu­neytið. Hún starf­aði þar lengi en fór svo til utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins og var m.a. sendi­herra í Frakk­landi í skeið, sem og á Spáni og Ítalíu og víðar. Hún gegndi trún­að­ar­stöðum innan OECD og þangað til 2020 var hún sendi­herra í Rúss­landi. Hvað heitir hún?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Karlinn hér að neðan fædd­ist 1. sept­em­ber 1934 en lést fyrir fjórum árum. Hann var leik­ari, mynd­list­ar­maður og fleira — og jóla­sveinn! Hvað hét hann?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.   Loðvík 14.

2.  Napóleon 3. 

3.  Á Víf­il­stöðum.

4.  Slóvakía.

5.  Fötluðum, jafnt and­lega sem lík­am­lega, og geð­sjúkum.

6.  Líbýu.

7.  Fimmtíu.

8.  Fischer og Spasskí.

9.  Flakið af Titanic.

10.  Berglind Ásgeirs­dóttir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Kio Briggs.

Á neðri mynd­inni er Ketill Larsen.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár