858. spurningaþraut: Pav Pilkey, Edward Heath, Oviedo og musculus

858. spurningaþraut: Pav Pilkey, Edward Heath, Oviedo og musculus

Fyrri auka­spurn­ing:

Ungi karl­mað­ur­inn á mynd­inni var efni­legur mál­ari en er nú reyndar þekkt­astur fyrir að hafa verið um skamma hríð í rokk­hljóm­sveit sem náði miklum vin­sældum. Hvað hét hann? Og svo er í boði lár­við­ar­spurn­ing með krossi og eik­ar­laufum, af því hún er ansi erfið: Hvað heitir stúlkan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Dav Pilkey er afar vin­sæll rit­höf­undur og reyndar mynd­list­ar­maður líka. Hann hefur gefið út fjölda bóka og rúmur tugur þeirra hefur komið út á íslensku. Flestar bókanna, sem komið hafa út á íslensku, fjöll­uðu um til­tekna sögu­hetju sem var og er kennd við flík eina sem sögu­hetjan klæð­ist. Hvað kall­ast þessi sögu­hetja Pilkeys? 

2.  Í hvaða landi er borgin Oviedo?

3.  Af ein­hverjum ástæðum eiga nær allir bestu mara­þon-hlauparar heims ættir sínar að rekja til sama land­svæðis á Jörðinni. Hvaða land­svæði er það? Er það Austur-Afríka — Ástralía — Banda­ríkin — Karíba-hafið — Mið-Asía — Vestur-Afríka? 

4.  Edward Heath gegndi ákveðnu virð­ing­aremb­ætti á árunum 1970-1974. Hvaða emb­ætti var það?

5.  Á hvaða nesi standa Bessa­staðir?

6.  Ómar Ingi Magn­ús­son fékk um ára­mótin síð­ustu ákveðna við­ur­kenn­ingu. Hver var hún?

7.  Vöðvar eru á mörgum vest­rænum tungu­málum nefndir eftir lat­neska orð­inu „musculus“, sam­an­ber enska orðið „muscles“. En hvað þýðir lat­neska orðið musculus?

8.  Talið er að öfl­ug­asti jarð­skjálfti á Íslandi á sögu­legum tíma hafi orðið 1784. Hvar voru upp­tök hans? Voru þau ... nálægt Húsavík, undir Kötlu, við Laka, á Reykja­nesi eða á Suð­ur­landi?

9.  Hversu öfl­ugur er skjálft­inn tal­inn hafa verið? Hér má skeika 0,2 til að frá á þeim kvarða sem nú er not­aður til að meta jarð­skjálfta.

10.  Vilborg Arna Giss­ur­ar­dóttir er helst kunn fyrir ... hvað?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað má sjá á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kafteinn Ofurbrók.

2.  Á Spáni.

3.  Austur-Afríku (fyrst og fremst Eþíópíu, Eritreu og Keníu).

4.  For­sæt­is­ráð­herra Bret­lands.

5.  Álfta­nesi.

6.  Íþrótta­maður árs­ins.

7.  Litla mús.

8.  Á Suð­ur­landi.

9.  Hann er met­inn 7,1 þótt auð­vitað sé ekki hægt að segja til um það nákvæm­lega. Rétt er þá allt frá 6,9-7,3.

10.  Ferðir á suð­ur­pól­inn, Everest og fleiri slík fjöll og þrekraunir ýmsar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Stu Sutcliffe sem var í Bítlunum skamma hríð en hætti til að ger­ast mál­ari en dó þá skömmu seinna eftir heila­blæð­ingu, aðeins 21 árs að aldri. Hér er eitt af mál­verkum hans.

Stúlkan er hins vegar unnusta hans, Astrid Kirchherr, sem var ljós­mynd­ari og tók frægar myndir af Bítlunum og hafði áhrif á stíl þeirra fyrstu miss­erin.

Á neðri mynd­inni er HUBBLE sjón­auk­inn gam­al­reyndi.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár