852. spurningaþraut: Þýskur barón í rússneskum her?

852. spurningaþraut: Þýskur barón í rússneskum her?

Fyrri auka­spurn­ing:

Þessi kona lék eitt aðal­hlut­verkið í frægri hryll­ings­mynd sem frum­sýnd var fyrir rúm­lega 40 árum. Hvað hét bíó­myndin? Nafn kon­unnar gefur svo eitt nett bíó­stig.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver lýsti yfir fram­boði sínu til for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar fyrir viku síðan?

2.  Á 18. öld barð­ist þýskur barón í her Rússa í stríði við Tyrki. Um afar lit­rík ævin­týri hans í þessu stríði var nokkru síðar samin fræg bók. Hvað hét þessi barón?

3.  Ill­skeyttur sjúk­dómur er einnig kenndur við þennan barón. Í hverju lýsir hann sér?

4.  Hvað þýðir orð­takið að eitt­hvað gangi á aft­ur­fót­unum hjá ein­hverjum?

5.  Árið 1970 varð kona ráð­herra á Íslandi í fyrsta sinn. Hvaða kona?

6.  En hvers konar ráð­herra varð hún? — og hér þarf að til­greina ráðu­neytið nákvæm­lega.

7.  Brynjólfur Bjarna­son var ára­tugum saman einna fremstur í flokki í hreyf­ingu íslenskra ... ja, hverra?

8.  Leiftur er dýr sem oft verður vart við Ísland þótt ekki þekki allir dýrið með þessu nafni. Hvers konar dýr er leiftur?

9.  Svo reynir hér á athygl­is­gáf­una. Ekki kíkja! — en númer hvað er þessi spurn­inga­þraut?

10.  Þýski rit­höf­und­ur­inn Erich Maria Remarque sendi 1928 frá sér skáld­sögu byggða á reynslu sinni úr skot­gröfum fyrri heims­styrj­aldar. Hvað nefnd­ist þessi skáld­saga í íslenskri þýð­ingu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Konan hér að neðan sat á Alþingi 2003 til 2007 og var þá yngst þing­manna. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kristrún Frosta­dóttir.

2.  Münchhausen.

3.  Fólk gerir sér upp sjúk­dóma. Athugið að ímynd­un­ar­veiki er ekki rétt svar — fólk sem er haldið ímynd­un­ar­veiki ímyndar sér að það sé haldið sjúk­dómum, en gerir sér þá ekki upp á vís­vit­andi hátt.

4.  Að allt gangi illa.

5.  Auður Auðuns.

6.  Dóms- og kirkju­mála­ráð­herra varð hún. Kirkju­málin verða að fylgja með.

7.  Komm­ún­ista. Sós­í­alistar duga hér ekki.

8.  Hvalur — af höfr­unga­ætt.

9.  Hún er númer 852.

10.  Tíð­inda­laust á vest­ur­víg­stöðv­unum.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Shelley Duvall lék í mynd­inni The Shining.

Duvall í mynd­inni The Shining 1980.

Þing­konan fyrr­ver­andi heitir Dagný Jóns­dóttir.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár