851. spurningaþraut: Svolítill leikur spurningahöfundar, hér

851. spurningaþraut: Svolítill leikur spurningahöfundar, hér

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd frá 1981 er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Fyrst minnst er á bíó­myndir, hver leik­stýrir mynd­inni Beast með Idris Elba í aðal­hlut­verki en sú var frum­sýnd nýlega?

2.  Elba lék í nokkur ár aðal­hlut­verk í breskum glæpa­þáttum. Hann lék rann­sókn­ar­lög­reglu­mann og þætt­irnir hétu eftir per­sónu hans. Persóna Elba hét sem sé ... hvað?

3.  Maui, O'ahu og Kaua'i heita þrjár eyjar sem til­heyra hvaða eyja­klasa?

4.  Frá hvaða eyju braust Napoleón Bonap­arte snemma árs 1815?

5.  Í hvaða landi er hæsta stytta heims­ins af konu?

6.  Hvað hét kona Óðins yfir­guðs?

7.  Sú er kölluð hjú­skap­ar­gyðja, en jafn­framt tekið fram að hún veit ... hvað?

8.  Hvaða karl er sagður hafa neglt plagg með all­mörgum full­yrð­ingum um guð­fræði­leg efni á kirkju­dyr í Wittenberg? — Og svo er lár­við­ar­stig í boði fyrir að muna hve margar full­yrð­ingar eða greinar voru á þessu plaggi.

9.  Og hvaða ár gerð­ist þetta? Var það 1317 — 1417 — 1517 — 1617 — eða 1717?

10.  Annar var læknir sem þró­aði eitt áhrifa­mesta lyf sög­unnar. Hinn var rit­höf­undur sem þró­aði eina vin­sæl­ustu sögu­per­sónu seinni ára­tuga. Þeir báru sama eft­ir­nafn sem var ... hvað?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða eld­stöð skildi eftir sig þau ummerki sem sjá má á þess­ari mynd? Takið eftir mönn­unum.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Baltasar Kormákur.

2.  Luther.

3.  Havaí-eyja­kla­s­anum.

4.  Elbu.

5.  Rúss­landi (við Vol­gograd, áður Stal­ingrad).

6.  Frigg.

7.  Örlög manna.

8.  Luther. Grein­arnar voru 95.

9.  1517.

10.  Fleming. Lækn­ir­inn hét Alex­ander og þró­aði pencillín, höf­und­ur­inn hét Ian og skóp James Bond.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Skjá­skotið er úr mynd­inni Das Boot.

Eld­stöðin sem skildi eftir sig jak­ann á seinni mynd­inni var Katla. Myndin er frá gos­inu 1918.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár