822. spurningaþraut: Málverk á plötuumslagi og fleira

822. spurningaþraut: Málverk á plötuumslagi og fleira

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað er að ger­ast á þess­ari mynd?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða hljóm­sveit sendi frá sér plöt­urnar Götuskó og Sturlu á átt­unda ára­tugnum?

2.  Hver var söng­kona þeirrar hljóm­sveitar?

3.  Hvaða ríki hefur flota­stöð á Gíbraltar-skaga?

4.  Hvernig kjöt fær maður ef maður biður um „ven­i­son“ á útlenskum veit­inga­húsum?

5.  Hvað nefnd­ist skatt­landið sem Pontíus Pílatus stjórn­aði á árunum 27-37 eftir upp­haf tíma­tals okkar?

6.  Í hvaða landi eru stöðu­vötnin Vänern og Vättern?

7.  Milli hvaða tveggja staða er Lauga­veg­ur­inn? — og hér er EKKI átt við göt­una í Reykja­vík.

8.  Og hversu langur er Lauga­veg­ur­inn? Hér má muna tveim kíló­metrum til eða frá.

9.  Í hvaða landi tala flestir spænsku að móð­ur­máli?

10.  En hvaða land kemur þar í öðru sæti?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Myndin hér að neðan prýðir albúm gríð­ar­lega vin­sællar plötu. Platan heitir eftir tón­list­ar­mönn­unum sem þar komu helst við sögu og á plöt­unni er að finna eitt af vin­sælli lögum 20. aldar. Hver er platan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Spilverk þjóð­anna.

2.  Diddú, Sigrún Hjálmtýs­dóttir.

3.  Bretland.

4.  Kjöt af hjart­ar­dýrum. Kjöt af hrein­dýrum er stundum kallað ven­i­son, svo það telst rétt líka.

5.  Júdea. Ekkert annað svar er rétt.

6.  Svíþjóð.

7.  Milli Land­manna­lauga og Þórs­merkur.

8.  Lauga­veg­ur­inn er 54 kíló­metrar svo rétt telst vera 52-56 kíló­metrar.

9.  Mexíkó.

10.  Kólumbía. Hér hafði ég skrifað Banda­ríkin skv. heim­ild sem ég fann á net­inu en eftir ábend­ingu skoð­aði ég málið betur og það virð­ist ljóst að Kólumbía er hið rétta svar. Banda­ríkin eru svo nefnd í 3.-5. sæti eftir því hver telur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni fylgj­ast Barack Obama Banda­ríkja­for­seti og menn hans með atlögu Banda­ríkja­hers að Usama bin Laden.

Neðri myndin prýðir umslag plöt­unnar Getz/Gilberto frá 1964, þar sem er að finna lagið um stúlk­una frá Ipanema.

Smellið á "Watch on YouTube" hér að neðan!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár