823. spurningaþraut: Veiðibjalla og teiknimyndasöguönd

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir fjallið á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Teikni­mynda­sögu­önd heitir — á ensku — Fauntleroy að milli­nafni sem vissu­lega er afar sjaldan notað. Hvað heitir öndin að öðru leyti?

2.  Monte Carlo heitir hérað og þó öllu heldur hverfi í ríki einu. Hvaða ríki er það?

3.  Fisk­teg­und nokkur er eft­ir­sótt mjög um víða ver­öld. Sú und­ir­teg­und hennar sem við hér á landi þekkjum ber lat­neska fræði­heitið Salmo salar. En hvað er íslenskt heiti þess fisks?

4.  Úr hvaða stöðu­vatni á Íslandi fellur Sogið?

5.  Guðrún Aspelund var nýlega ráðin í starf sem lengst af var ekki sér­lega ofar­lega í umræð­unni, þótt á því hafi orðið breyt­ing síð­ustu árin. Hvaða starf er það?

6.  Hvað heitir hafn­ar­hverfið í Edinborg, sem fyrrum var oft talað um sem sér­staka hafn­ar­borg?

7.  Hvaða fót­boltalið hefur oft­ast orðið Spán­ar­meist­ari í fót­bolta karla?

8.  Hvaða fugl sem það oft er kall­aður veiði­bjalla?

9.  Hvað hét sá land­náms­maður sem nam land á Vest­fjörðum og Berg­sveinn Birg­is­son fræði­maður og skáld hefur skrifað mikið um, bæði fræði­ritið Leitin að svarta vík­ingnum og skáld­verk?

10.  Þessi land­náms­maður átti tví­bura­bróður sem nam land við Eyja­fjörð. Hvað hét hann?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi mynd var tekin 1925. Karlinn og konan voru bæði heims­fræg á (nokkurn veg­inn) sama sviði. Hvað hétu þau? Hafa þarf bæði nöfnin rétt.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Andrés Önd

2.  Monaco.

3.  Lax.

4.  Þing­valla­vatni.

5.  Sótt­varn­ar­læknir.

6.  Leith.

7.  Real Madrid.

8.  Svart­bakur.

9.  Geir­mundur helj­ar­skinn.

10.  Hámundur.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Herðu­breið. RAX tók mynd­ina.

Á neðri mynd­inni ræð­ast þau við vís­inda­menn­irnir Albert Einstein og Maria Sklodowska Curie. Marie Curie er alveg nóg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár