805. spurningaþraut: Sólgleraugu eru alltaf töff!

805. spurningaþraut: Sólgleraugu eru alltaf töff!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Boris Johnson mun brátt láta af emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Ég hef nú spurt álíka spurn­ingar áður, en læt samt vaða: Langafi Johnsons í föð­ur­ætt var ráð­herra í allt öðru ríki en Bret­landi. Hvaða ríki var það?

2.  Johnson til­heyrir Íhalds­flokknum en hvað heitir stærsti stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ur­inn á Bret­landi?

3.  En þriðji stærsti þing­flokk­ur­inn á breska þing­inu, hvað heitir hann?

4.  Árið 1924 var stofn­aður Íhalds­flokkur á Íslandi en hann var lagður niður fimm árum seinna, þegar þing­menn hans stofn­uðu — ásamt öðrum — nýjan flokk. Hvað hét nýi flokk­ur­inn?

5.  Maya Angelou hét kona ein sem fædd­ist 1928 og vann fyrir sér sem dans­ari framan af full­orð­ins­árum. En svo varð hún þekkt sem ... hvað?

6.  Hvar á Íslandi er Dritvík þar sem fyrrum var útræði nokk­urt?

7.  Kringum 1980 var ein vin­sælasta popp­hljóm­sveit heims enskt tríó og hétu þre­menn­ing­arnir í hljóm­sveit­inni Stewart Copeland, Andy Summers og Gordon Sumner. Hvað kall­að­ist hljóm­sveit þeirra?

8.  Belukha heitir 4.506 metra hátt fjall í Altai-fjall­garð­inum. Í hvaða heims­álfu er Belukha?

9.  Þótt fræði­menn séu reyndar ekki alveg á eitt sáttir, þá telja margir að í Altai-fjöllum hafi fyrir 2.500-3.000 árum þró­ast þjóð sem síðar óx að íþrótt og frægð og dreifð­ist langar leiðir hingað og þangað. Hvaða þjóð kynni það að hafa verið verið?

10.  Hver er lang­þekktasta högg­mynd mynd­höggv­ar­ans Edvards Eriksens?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er karl þessi? (Hér gef ég þá vís­bend­ingu að þetta er EKKI country-söngv­ari!)

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Tyrkland.

2.  Verka­manna­flokk­ur­inn.

3.  Skoski þjóð­ar­flokk­ur­inn.

4.  Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn.

5.  Rit­höf­undur.

6.  Á Snæ­fells­nesi.

7.  The Police.

8.  Asíu.

9.  Tyrkir.

Altai-fjöll eru á mótum Kasakstans, Rúss­lands (Síberíu), Mongólíu og Kína.

10.  Litla haf­meyjan í Kaup­manna­höfn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Bob Dylan.

Á neðri mynd­inni er Elon Musk auð­kýf­ingur.

Þessi Musk

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár