804. spurningaþraut: Af hverju er verið að birta þessa mynd?

804. spurningaþraut: Af hverju er verið að birta þessa mynd?

Fyrri auka­spurn­ing:

Flug­stjóri veifar til fólks niðri á flug­braut­inni. Af hverju er þessi mynd?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Íslenska lands­liðið í fót­bolta er nú að búast til keppni á Evr­ópu­móti kvenna. Hversu oft hefur liðið ÁÐUR kom­ist í loka­keppn­ina í kvenna­flokknum?

2.  Árið 1989 hrundu komm­ún­ista­stjórn­irnar í Mið- og Austur-Evrópu hver af annarri. Í árs­lok tók til dæmis við sem for­seti í einu þess­ara ríkja Václav nokkur Havel sem verið hafði and­ófs­maður í land­inu og meðal ann­ars setið mörgum sinnum í fang­elsi, lengst í fjögur ár sam­fleytt. Í hvaða ríki var Havel nú allt í einu orð­inn for­seti?

3.  En fyrir utan að vera and­ófs­maður og síðan for­seti, þá var Havel kunn­astur fyrir að vera ... hvað?

4.  Benedikt Erlings­son leik­ari, leik­stjóri og nú síð­ast skóg­rækt­ar­fröm­uður er af leik­hús­fólki kom­inn. Faðir hans var Erlingur Gíslason leik­ari, en móðir Bene­dikts var einn kunn­asti leik­stjóri Íslend­inga í ára­tugi. Hún hét ... hvað?

5.  Á hvaða grísku eyju er bær­inn Knossos?

6.  Lagið Running Up That Hill frá 1985 hefur öðl­ast end­ur­nýj­aðar vin­sældir á árinu eftir að hafa verið notað í vin­sælum sjón­varps­þætti. Hvaða þætti?

7.  Lagið er eftir söng­kon­una sem flytur það. Hvað heitir hún? 

8.  Hversu oft tók bónda­sonur hár úr hala Búkollu?

9.  Maður nokkur var býsna umdeildur þegar hann kom fram á sjón­ar­sviðið fyrir 20-25 árum, meðal ann­ars en þó ekki ein­göngu vegna þess að hann er hvítur á hör­und en hasl­aði sér hins vegar völl á sviði þar sem svartir lista­menn höfðu fram að því verið nær ein­ráðir. En hann hélt sig við leist­ann sinn og 2020 kom út 11. platan hans, Music To Be Murdered By. Hvað kallar mað­ur­inn sig?

10.  Hvað er aftasta sjálf­stæða ríkið í staf­róf­inu? Eingöngu má not­ast við íslenska nafna­hefð og íslenska bók­stafi, en ekki c, z, q og w.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Skjá­skotið er úr Disney-mynd frá 1940 og reyndar af atriði sem skar sig svo­lítið frá öðrum atriðum mynd­ar­innar. Hvað hét myndin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Þrisvar.

2.  Tékkóslóvakíu. Athugið að Tékkland er ekki rétt.

3.  Leik­rita­höf­undur.

4.  Brynja Bene­dikts­dóttir.

5.  Krít.

6.  Stranger Things.

7.  Kate Bush. 

Á hlaupum upp hæð­ina þá arna

8.  Þrisvar.

9.  Eminem.

10.  Þýska­land.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni veifar Paul Tibbets flug­stjóri áður en hann leggur af stað á Boeing B-29 vél sinni til að gera fyrstu kjarn­orku­árás sög­unnar á Hírósjíma. Vélina hafði hann skírt Enolu Gay eftir móður sinni. Nóg er að nefna Hírósjíma.

Seinna skjá­skotið er úr mynd­inni Fantasíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár