801. spurningaþraut: Hver var atvinna Vladimirs Komarovs?

801. spurningaþraut: Hver var atvinna Vladimirs Komarovs?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er kona þessi?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi var fót­bolti í núver­andi mynd „fund­inn upp“? Svarið þarf að vera nokkuð nákvæmt.

2.  Í hvaða heims­álfu er eyjan Borneó?

3.  Hver leik­stýrði kvik­mynd­inni Jaws um risa­stóran hákarl?

4.  Þann 24. apríl 1967 lést Rússinn Vladimir Komarov í vinnu­slysi. Hann var fyrsti mað­ur­inn í nýrri stétt manna sem lét lífið við störf og framan af var margt á huldu um dauða hans. Síðan hafa fleiri hans líkar dáið við störf en þó ekki margir, enda er þetta ekki fjöl­menn stétt. Hvað var starf Komarovs, sem kost­aði hann lífið?

5.  Hvað kall­ast höf­uð­borg Írlands, Dublin, í íslenskum heim­ildum fornum?

6.  Hvaða hljóm­sveit söng um Sigurjón digra?

7.  „Sagan segir frá því er tröll hugð­ust hrekja bónda burtu af býli sínu, í dal nokkrum, þar sem þau höfðu þegar hrakið alla aðra bændur á brott. Með góðri hjálp álfa, tekst að koma tröll­unum á kné og allt endar vel.“ Þannig er lýst sögu­þræði íslenskrar kvik­myndar sem frum­sýnd var 1950. Hvað hét hún?

8.  Á eftir guð­spjöll­unum fjórum í Nýja testa­ment­inu kemur sér­stök bók sem heldur áfram frá­sögn­inni eftir að Jesú hefur verið kross­festur. Hvað heitir sú Bibl­íu­bók?

9.  Þegar Íslend­ingar féllust á að taka við banda­rísku her­liði sum­arið 1941, sem koma skyldi í stað Breta, þá settu íslensk stjórn­völd ákveðið leyni­legt skil­yrði varð­andi komu banda­rísku her­mann­anna. Hvað var það?

10.  Hér fylgir listi af tíu fjöl­menn­ustu borgum Banda­ríkj­anna: New York, New York-ríki — Los Angeles, Kali­forníu — Chicago, Illinois — Phoenix, Arizona — San Antonio, Texas — Phila­delphia, Penn­syl­vaníu — San Diego, Kali­forníu — Dallas, Texas — Austin, Texas. Nema hvað þær eru bara níu, það vantar eina. Hvaða borg í Banda­ríkj­unum vantar ein­hvers staðar í þennan lista yfir fjöl­menn­ustu borg­irnar? Þið þurfið ekki að hafa núm­erið, bara nafnið.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða höf­uð­borg, sem er ekki all­fjarri okkur, má sjá hér ofan frá?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  England. Bretland er ekki rétt.

2.  Asíu.

3.  Spi­el­berg.

4.  Hann var geim­fari.

5.  Dyflinni.

6.  Stuðmenn.

7.  Síðasti bær­inn í dalnum.

8.  Post­ula­sagan.

9.  Að hingað kæmu ekki svartir her­menn.

10.  Houston í Texas er fjórða fjöl­menn­asta borg Banda­ríkj­anna. (Ef ein­hver bjóst við San Francisco, þá er hún í 17. sæti.)

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er Faye Dunaway film­stjarna.

Á neðri mynd­inni má sjá yfir Stokk­hólm.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MLS
    Magnús Líndal Sigurgeirsson skrifaði
    Voru það ekki geimfarar sem létust í geimskutluslysinu forðum?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár