802. spurningaþraut: Hér gefst kostur á lárviðarstigi — með eikarlaufum!

802. spurningaþraut: Hér gefst kostur á lárviðarstigi — með eikarlaufum!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða meg­in­fljót rennur þarna um þröngt „hlið“ á leið sinni til sjávar? Og þið fáið lár­við­ar­stig með eik­ar­laufum ef þið munið af hverjum lág­myndin í klett­inum er.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða gata í Reykja­vík er talin liggja nokkurn veg­inn eins og fyrsti gang­stíg­ur­inn sem þar var troð­inn?

2.  Hvernig er fram­haldið: „Að fljóta sof­andi að  ...“ hverju?

3.  Við Hagatorg í Reykja­vík standa tveir grunn­skólar. Hvað heita þeir?

4.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Tallinn?

5.  Ef þú ferð á veit­inga­hús og pantar „escargots“, hvað færðu þá?

6.  Í hvaða fjall­garði má finna landið Dagestan? — sem vel að merkja er ekki sjálf­stætt ríki.

7.  Ptolem­eusar-ættin í Egifta­landi hafði það fyrir sið að gifta systk­ini sem síðan sátu saman að völdum. Kunnasta drottn­ingin af Ptolem­eusar-ætt­inni var hin sögu­fræga Kleópatra og hún ríkti í byrjun með tveim bræðrum sínum. Þeir hétu báðir sama nafn­inu og urðu báðir skamm­lífir. Hvað hétu þeir?

8.  Á 13. öld var Osló ekki höf­uð­borg Noregs, heldur ... hvaða borg?

9.  Góðan hluta þeirrar aldar var norskur kóngur að seil­ast til áhrifa á Íslandi. Hvað hét hann?

10.  Léa Seydoux heitir frönsk leik­kona sem hefur hlotið verð­laun og við­ur­kenn­ingar fyrir leik sinn, t.d. fyrir hlut­verk sitt í mynd­inni Blár er hlýjasti lit­ur­inn á Cannes-hátíð­inni 2013. Lítill vafi er þó á að flestir hafa séð hana í tveim vin­sælum myndum frá 2015 og 2021 þar sem hún lék hlut­verk Madel­eine Swann. Hvaða myndir eru það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fáni er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Aðal­stræti.

2.  Feigðar­ósi.

3.  Mela­skóli og Haga­skóli.

4.  Eist­landi.

5.  Snigla.

6.  Kákasus.

7.  Ptolem­eus.

8.  Bergen, Björgvin.

9.  Hákon.

10.  Bond-myndir. Ekki er nauð­syn­legt að vita nöfn þeirra beggja en þær heita Spectre og No Time To Die. 

Léa Seydoux

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá Dóná falla um hluta „járn­hliðs­ins“ á mótum Serbíu og Rúmeníu.

Og kóng­ur­inn í klett­inum er Decebalus kon­ungur í Dakíu (Rúmeníu) 87 – 106 e.Kr.

Á neðri mynd­inni er kanadíski fán­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár