696. spurningaþraut: Hér er spurt um plötur og tónlistarmenn en líka kaffihús

696. spurningaþraut: Hér er spurt um plötur og tónlistarmenn en líka kaffihús

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin hér að ofan prýðir umslag plötu sem kom út 2018 og með þess­ari áletrun. Tón­list­ar­mað­ur­inn sem gaf plöt­una út er einn fræg­asti og vin­sæl­asti í heimi. Hver er sá?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Haaretz heitir útbreitt og áhrifa­mikið dag­blað í ákveðnu landi. Hvaða land ætli það sé?

2.  El País heitir annað blað í öðru landi. Og hvaða land er það?

3.  Hver sigr­aði í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Reykja­vík fyrir nokkrum dögum?

4.  Hvað heitir höf­uð­borgin í Tyrk­landi? (Ég HELD að ég sé ekki búinn að spyrja að þessu áður!)

5.  Evang­eline Booth fædd­ist árið 1865. Hún var hers­höfð­ingi en drap þó aldrei nokkurn mann — svo vitað sé. Í hvaða her var Booth hers­höfð­ingi?

6.  Dýr eitt heitir Baloo eða Balú og frægt fyrir lífs­gleði og hjálp­semi. Hvernig dýr er Balú?

7.  Hvaða hljóm­sveit gaf út plöt­una Abbey Road?

8.  En hvaða hljóm­sveit gaf út plöt­una Lifun?

9.  Hvar má finna kvarka — eða quarks eins og þeir heita á enskri tungu?

10.  Árið 1951 var opnað kaffi­hús í Reykja­vík sem enn starfar. Hvað heitir það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á mynd­inni má sjá leikkon­una Katherine Ross í hlut­verki sínu í mynd frá 1969 og eins og sjá má er hún að læra að hjóla. Hvaða bíó­mynd er um að ræða?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ísrael.

2.  Spáni.

3.  Hildur Björns­dóttir.

4.  Ankara.

5.  Hjálp­ræð­is­hernum.

6.  Björn (per­sóna í sög­unum um Móglí).

7.  Bítl­arnir.

8.  Trúbrot.

9.  Inni í atómum, eða í innstu ögnum efn­is­ins — eitt­hvað í þá átt­ina dugar.

10.  Prikið.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fyrri spurn­ing — tón­list­ar­mað­ur­inn er Kanye West.

Seinni spurn­ing — bíó­myndin er Butch Cassidy and the Sundance Kid.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
3
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár