688. spurningaþraut: Eitt lárviðarstig í boði — en fyrir mjög erfiða spurningu

688. spurningaþraut: Eitt lárviðarstig í boði — en fyrir mjög erfiða spurningu

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað kall­ast dýrið á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét borgin þar sem Vladimir Pútin ólst upp?

2.  NATO hefur verið nokkuð í umræð­unni að und­an­förnu. NATO er skamm­stöfun og þýðir í raun ... hvað?

3.  Hver leik­stýrði kvik­mynd­inni vin­sælu Með allt á hreinu?

4.  Haraldur Þor­leifs­son fæst við sitt af hverju en að und­an­förnu hefur hann einkum beitt sér fyrir ... hverju?

5.  Hvaða hljóm­sveit sendi á sínum tíma frá sér plöt­una Dark Side of the Moon?

6.  En hvaða ungi tón­list­ar­maður hefur sent frá sér tvær stúd­íó­plötur sem heita When We All Fall Asleep, Where Do We Go? og Happier Than Ever.

7.  Í upp­hafi hvaða aldar hófst Marteinn Lúter handa um það sem hann taldi vera sið­bót kaþ­ólsku kirkj­unnar?

8.  Jørn Utzon hét danskur arki­tekt sem hann­aði bygg­ingu sem ég hugsa að allir þekki á mynd en giska á að til­tölu­lega fáir Íslend­ingar hafi samt séð það með eigin augum. Hvaða bygg­ing er það?

9.  Hvað heitir fló­inn út af vest­ur­strönd Frakk­lands?

10.  Tveir menn hafa fengið Nóbels­verð­laun í bók­menntum bein­línis fyrir sagn­fræði­leg verk. Annar fékk verð­launin 1953, tveimur árum á undan Halldóri Laxness, en reyndar lét Nóbels­nefndin þess getið að sá höf­undur hefði nú eig­in­lega fengið prís­inn enn frekar fyrir ræðu­mennsku, enda þótti hann magn­aður ræðu­maður. Hvað hét þessi Nóbels­verð­launa­hafi? Og svo fáiði lár­við­ar­stig ef þið vitið svarið við hinni níð­ang­urs­lega þungu spurn­ingu: Hver var HINN höf­und­ur­inn sem fékk Nóbel í bók­menntum fyrir sagn­fræði­verk, en það var strax árið 1902?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér er svo Nóbels­verð­launa­haf­inn í bók­menntum fyrir sjö árum. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Len­ingrad.

2.  North Atlantic Treaty Organization.

3.  Ágúst Guð­munds­son.

4.  Að reisa rampa fyrir hjóla­stóla upp að fyr­ir­tækjum og stofn­unum.

5.  Pink Floyd.

6.  Billie Eilish.

7.  Sextándu aldar. Hann tók til óspilltra mál­anna 1517.

8.  Óperu­húsið í Sidney í Ástralíu.

9.  Biscaya-flói.

10.  Churchill fékk verð­launin 1953. Verð­launa­haf­inn 1902 var aftur á móti sagn­fræð­ing­ur­inn Mommsen.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd er rauð­panda.

Á neðri mynd er Svetlana Alexievich. Ann­að­hvort nafn hennar dugar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár