687. spurningaþraut: Margrét Þorbjörg Kristjánsdóttir og fleiri

687. spurningaþraut: Margrét Þorbjörg Kristjánsdóttir og fleiri

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi er staf­rófið okkar upp­runnið?

2.  Hver skrif­aði leik­ritin Hedda Gabler og Brúðu­heim­ilið?

3.  Hversu marga fætur hafa skor­dýr?

4.  Hvað þýðir orðið penta­gon?

5.  Ákveðin stofnun hefur aðsetur í húsi sem heitir Pentagon. Hvaða stofnun er það?

6.  Jón Sig­urðs­son sjálf­stæð­is­hetja Íslend­inga var ekki ætíð óum­deildur á sinni tíð. Hann lenti til dæmis í kröppum dansi og miklum deilum út af sjúk­dómi einum. Hvaða sjúk­dómur var það?

7.  Við hvað fæst Rafael Nadal í líf­inu?

8.  Margrét Þorbjörg Krist­jáns­dóttir fædd­ist 1867. Hún lifði langa ævi, átti mikið af börnum og var — eins og sagt var — stoð og stytta eig­inanns síns sem var mik­ill umsvifa­maður. Það gekk á ýmsu í þeim umsvifum en þegar Margrét lést 1945 hafði gengið vel hjá þeim hjónum um langa hríð. Hver var eig­in­mað­ur­inn?

9.  Í hvaða bíó­mynd frá 1984 á Kyle nokkur Reese í gríð­ar­legri bar­áttu við ill­skeyttan óvin sem elt­ist við konu eina?

10.  Eitt allra fræg­asta ljóð vest­rænna bók­mennta var fyrst birt fyrir réttum 100 árum. Hvað heitir það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi reffi­legi karl?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Róma­veldi.

2.  Ibsen.

3.  Sex.

4.  Fimm­hyrn­ingur.

5.  Banda­ríska varn­ar­mála­ráðu­neytið.

6.  Fjár­kláði.

7.  Hann leikur tennis.

8.  Thor Jensen.

9.  Term­inator.

10.  The Waste Land, Eyðilandið.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Grace Jones.

Á neðri mynd­inni er Hinden­burg hers­höfð­ingi og síðar for­seti Þýska­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár