689. spurningaþraut: „Vinur, hví dregurðu mig inn í þetta skelfilega hús?“

689. spurningaþraut: „Vinur, hví dregurðu mig inn í þetta skelfilega hús?“

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað kall­ast dýrið hér til hægri?

Smella má á mynd­ina til að sjá hana betur.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Myndin The Power of the Dog er farin að sópa að sér verð­launum og er talin sig­ur­strang­leg þegar Ósk­arsverð­launin verða afhent. Hver er leik­stjóri mynd­ar­innar?

2.  Og frá hvaða landi kemur leik­stjór­inn?

3.  Í hvaða bók Halldórs Laxness segir kona ein við karl: „Vinur, hví dreg­urðu mig inn í þetta skelfi­lega hús?“

4.  Í dæmisögu einni fornri segir frá því þegar ein­hver reynir að krækja í vín­ber en tekst ekki og segir þá í fússi: „Iss, þau eru hvort sem er súr.“ Hver var svo fúll?

5.  Hvað heita syst­urnar þrjár sem halda brátt í Eurovision fyrir Íslands hönd? Hafa þarf öll þrjú nöfnin rétt en gælu­nöfn duga reyndar alveg.

6.  Í hvaða sæti lenti Gagna­magnið í síð­astu Eurovision-keppni?

7.  Hvernig verk skrif­aði H.C.Andersen?

8.  En hvað þýddu stafirnir H.C. í nafni hans?

9.  Hver var Moriarty pró­fessor?

10.  Gossypium hirsutum heitir jurt ein sem upp­runnin er í Mið-Ameríku en reyndar hafa jurtir af sama tagi vaxið í flestum heims­hlutum öðrum, í Kína og á Indlandi, sem í Norður-Afríku og við Mið­jarð­ar­haf. Jurtin varð snemma ein helsta nytja­jurt sem mað­ur­inn hefur lært að rækta og nú er Gossypium hirsutum útbreiddasta teg­undin. Hvaða fyr­ir­brigði er Gossypium?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta hér?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Jane Campion.

2.  Nýja Sjálandi.

3.  Íslands­klukk­unni.

4.  Refurinn.

5.  Sigga, Beta og Elín.

6.  Fjórða.

7.  Ævintýri.

8.  Hans Christian.

9.  And­stæð­ingur Sherlocks Holmes, glæpafor­ingi.

10.  Bómull.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er hlé­barða­selur í þann veg­inn að gleypa mör­gæs.

Á neðri mynd­inni er Lisa Simpson.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jóhanna Harðardóttir skrifaði
    Kaffi og spurningaleikur er fín byrjun á hverjum degi. Gekk þó ekki alveg nógu vel í dag
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár