686. spurningaþraut: Stjarna, gresi, lilja, kolla og maðra?

686. spurningaþraut: Stjarna, gresi, lilja, kolla og maðra?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver mál­aði mál­verkið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Frá hvaða landi kemur hljóm­sveitin Kraftwerk?

2.  Fyrir hvers konar tón­list er hún fyrst og fremst kunn?

3.  Hvar í ver­öld­inni er borgin Seva­stopol? Hér er spurt um landa­fræði­fyr­ir­brigði, ekki ríki.

4.  „Garda“ er orð sem notað er á Írlandi yfir ákveðna stétt fólks. Hvað kall­ast sú stétt á Íslandi?

5.  Hversu margir voru íbúar Úkraínu í byrjun árs? Hér má skeika þrem millj­ónum til eða frá.

6.  Hvað skyldi ann­ars vera fjöl­menn­asta ríki Evrópu sem er allt innan marka álf­unnar?

7.  Hvaða hljóm­sveit sendi frá sér plöt­una The Joshua Tree árið 1987? 

8.  Tvö voru þau emb­ætti sem Auður Auðuns gegndi fyrst allra kvenna á Íslandi. Hver voru þau? — og nefna verður bæði.

9.  Hvað þýðir „að fleygja sér“? 

10.  Hvaða for­skeyti má nota við þessi heiti á íslenskum jurtum: -stjarna, -gresi, -lilja, -kolla og -maðra?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir leik­konan sem hér sést í hlut­verk ensku drottn­ing­ar­innar Jane Seymour?

**

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Þýska­landi.

2.  Tölvu­popp, elektróníska tón­list.

3.  Á Krím­skaga.

4.  Lög­reglu­menn.

5.  Íbúarnir voru 44 millj­ónir (rétt rúm­lega) svo þið fáið rétt fyrir 41-47 millj­ónir.

6.  Þýska­land.

7.  U2.

8.  Borg­ar­stjóri í Reykja­vík og síðan ráð­herra.

9.  Að leggja sig, halla sér stund­ar­korn.

10.  Blá-.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Málarinn er Jóhann Briem.

Leik­konan er Aníta Briem.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ingadóttir skrifaði
    Garda er reyndar eintalan=lögreglumaður. Flt. er gardai=lögreglumenn.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár