678. spurningaþraut: Fugl sem heitir eftir (daufum) eldi?

678. spurningaþraut: Fugl sem heitir eftir (daufum) eldi?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn sem fær sér hér tesopa?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað nefnd­ist bingóstað­ur­inn sem var lagður niður fyrir fáeinum dögum?

2.  Eyr­ar­fjall og Ernir heita fjöll tvö sem umlykja fjörð nokkurn en í firð­inum er að finna all­fjöl­mennan þétt­býl­is­stað sem heitir ...?

3.  Hvaða Íslend­ingur skrif­aði bók­ina Gerska ævin­týrið á fjórða ára­tugnum þar sem hann lof­söng stjórn komm­ún­ista og Stalíns í Sov­ét­ríkj­unum?

4.  Hér verða nú talin upp fimm fót­boltalið, og síðan spurt: Hvaða Íslend­ingur hefur leikið með þessum liðum öllum? Liðin eru Bolton — Chelsea — Fulham — Stoke — Totten­ham.

5.  Chris nokkur Harrison var frá 2002-2021 kynnir í gríð­ar­lega vin­sælum banda­rískum raun­veru­leika­þáttum í sjón­varpi. Sumum finnst nú raun­veru­leik­inn í þessum raun­veru­leika­þáttum ekki ýkja raun­veru­legur en furðu margir horfa samt á þætt­ina með stjörnur í augum. Hvaða þættir eru þetta?

6.  Hvar verða næstu sum­ar­ólymp­íu­leikar haldnir eftir tvö ár?

7.  Fugla­teg­und ein skipt­ist í nokkrar ætt­kvíslir sem búa um mest­allan heim en þó aðeins þar sem hlýtt er. Nafn teg­und­ar­innar mun merkja „loga-legur“ og vísar til litar fugl­anna sem þótti líkur eld­logum. En kannski frekar daufum logum samt. Hvaða fuglar eru þetta?

8.  Hvað heitir for­seti Úkraínu?

9.  Hversu margir eru hinir svoköll­uðu stóru píramídar í Giza í Egifta­landi?

10.  Árið 1708 gerði nor­rænn kon­ungur inn­rás á rúss­neskt land og stefndi til Moskvu. Hann beið þó ósigur fyrir her­sveitum Rússa og varð að hrökkl­ast burt. Hvað hét kóngur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Útlínur hvers má sjá á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Vinabær.

2.  Ísa­fjörður.

3.  Halldór Laxness.

4.  Eiður Smári.

5.  Bachelor.

6.  Í París.

7.  Flamengó.

8.  Selenskí.

9.  Þrír.

10.  Karl tólfti.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Alfred Hitchcock.

Á neðri mynd­inni eru útlínur Krím­skaga í Svarta­hafi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár