679. spurningaþraut: Hver hefur tvisvar unnið íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir fræðirit?

679. spurningaþraut: Hver hefur tvisvar unnið íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir fræðirit?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvers konar köttur er sá köttur hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað heitir banka­stjóri Íslands­banka?

2.  Katmandu heitir borg ein í Asíu, höf­uð­borg í ... hvaða landi?

3.  Hvaða skipa­fé­lag rak á sínum tíma far­þega­skipið Gullfoss?

4.  Íslensku bók­mennta­verð­launin í flokki fræði­rita og bóka almenns eðlis hafa verið veitt frá 1993. Einn höf­undur hefur fengið þau tví­vegis. Hver er sá?

5.  Árið 1908 var stofnuð í Banda­ríkj­unum sér­stök lög­gæslu­sveit sem kunn er undir ákveð­inni skamm­stöfun. Hver er hún?

6.  Það var dug­mik­ill dóms­mála­ráð­herra í rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna sem gekkst fyrir stofnun lög­reglu­sveit­ar­innar. Afa­bróðir þessa amer­íska dóms­mála­ráð­herra var mjög frægur maður á sinni tíð (í byrjun 19. aldar), raunar alþekktur. Hver var það?

7.  La Manche nefn­ist fyr­ir­bæri eitt í landa­fræð­inni á frönsku, en allt annað nafn er notað á ensku yfir fyr­ir­bærið — og enska nafnið gefur raunar til kynna að Eng­lend­ingar vilji kasta eign sinni yfir það. Það hefur raunar löngum verið Eng­lend­ingum mik­ils virði. En við Íslend­ingar notum yfir fyr­ir­bærið nafn sem er í raun bein þýð­ing á franska heit­inu. Hvaða fyr­ir­bæri er La Manche?

8.  Hver er fjöl­menn­asta borgin í Suður-Ameríku?

9.  En hver skyldi vera sú næst fjöl­menn­asta þar í álfu?

10.  William Windsor er þekkt­astur undir öðru nafni. Hvaða nafn er það?

***

Auka­spurn­ing:

Þetta er mynd frá 2006. Hver er konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Birna Ein­ars­dóttir.

2.  Nepal.

3.  Eim­skipa­fé­lagið.

4.  Guðjón Frið­riks­son.

5.  FBI.

6.  Napóleon Frakka­keis­ari.

7.  Ermar­sund.

8.  Sao Paolo í Brasilíu.

9.  Lima í Perú.

10.  Vil­hjálmur prins, her­tog­inn af Cambridge.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er pers­neskur köttur.

Á neðri mynd­inni er Drífa Snædal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jónsson Höskuldur skrifaði
    Halgrímur hHelgasona eða sá striðsglaði
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár