677. spurningaþraut: Hvað hét fyrirsætan á málverki þessu?

677. spurningaþraut: Hvað hét fyrirsætan á málverki þessu?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað hét konan sem var fyr­ir­mynd mál­ar­ans er mál­aði þetta verk?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Og hvað hét ann­ars málar­inn?

2.  En hvaða mál­ari mál­aði loftið í Sixtínsku kapell­unni?

3.  Í hvaða borg er Sixtínska kapellan?

4.  Bókin Undan ill­gres­inu fékk nor­rænu barna­bóka­verð­launin fyrir árið 1990. Hver skrif­aði bók­ina?

5.  Hversu mörg eru stjörnu­merki hins svo­nefnda dýra­hrings?

6.  Maríana-gjána má finna á hafs­botni í hvaða hafi?

7.  Hvað er ann­ars merki­legt við Maríana-gjána?

8.  Árið 1835 fann þýski efna­fræð­ing­ur­inn Liebig upp aðferð til að búa til ákveð­inn hlut. Menn höfðu áður reynt ýmsar aðferðir til að búa til svona hluti og stundum með sæmi­legum árangri og not­uðu til þess bæði gljá­fægða steina og málm­skífur af ýmsu tagi, en upp­finn­ing Liebigs olli sann­kall­aðri bylt­ingu. Hver var þessi hlutur hans?

9.  Jón Viðar Jónsson stund­aði lengi ákveðin verk, og gerir sosum enn að ein­hverju leyti. Hann þótti sköru­legur við þessi verk og varð bæði vin­sæll en líka all­mjög umdeildur. Hver voru þessi verk hans?

10.  Hvaða krydd er yfir­leitt notað á Margar­ítu-pizzur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Austur snýr svona nokkurn veg­inn upp á mynd­inni hér að neðan. Ef hún prent­ast vel sjá­iði móta fyrir nokkrum smá­eyjum allra neðst sem kall­aðar eru Juan Fernandez-eyjar. Þær eru frægar fyrir hvað?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Picasso.

2,  Michelangelo.

3.  Vatíkan-borg.

4.  Guðrún Helga­dóttir.

5.  Tólf.

6.  Kyrra­haf­inu.

7.  Þar er dýpsta haf­svæði Jarðar.

8.  Spegill.

9.  Leik­dómar.

10.  Basil, basi­líka.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fyr­ir­sætan hét Dora Maar.

Eyjarnar eru frægar fyrir að á einni þeirra varð skip­reika sjó­maður sem síðar varð fyr­ir­mynd að skáld­sagna­per­són­unni Robinson Crusoe.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár