676. spurningaþraut: Að hvaða óvæntu staðreynd komust áhorfendur?

676. spurningaþraut: Að hvaða óvæntu staðreynd komust áhorfendur?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir per­sónan hér að ofan? Nauð­syn­legt er að hafa bæði skírnar- og ætt­ar­nafn rétt.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í Moldovu er talað tungu­mál sem er náskylt og stundum talið málýska ann­ars tungu­máls. Hvaða tungu­mál er það?

2.  Soho er nafn á hverfum í tveim vest­rænum stór­borgum. Nefnið borg­irnar báðar.

3.  Hvaða teg­und hænsn­fugla verpir villt á Íslandi?

4.  En hvaða fugl verpir í laup?

5.  Hvað heitir sú höll í nor­rænni goða­fræði þar sem vopn­bitnir menn sitja við eilífan gleð­skap?

6.  Hver eru hin fimm hefð­bundnu skiln­ing­ar­vit manns­ins? 

7.  En hver lék aftur á móti aðal­hlut­verkið í kvik­mynd­inni Sjötta skiln­ing­ar­vitið, eða Sixth Sense frá 1999?

8.  Að hvaða óvæntu stað­reynd komust áhorf­endur í lok þeirrar myndar um per­són­una sem aðal­leik­ar­inn lék?

9.  Vigdís Hauks­dóttir situr í borg­ar­stjórn Reykja­víkur fyrir ... hvaða flokk?

10.  „... ég segi alltaf færri og færri orð, / enda hafði ég lengi á þeim illan bifur. / Tign manns­ins segja þeir / þó þeir geri sér ekki ljóst að orð eru dýr / né með hverju þeir geti borgað.“ Hver orti svo?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Bíllinn hér að neðan „lék“ í þremur bíó­myndum á átt­unni, það er að segja níunda ára­tugnum. Hvað nefnd­ust þær bíó­myndir einu nafni?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Rúmenska.

2.  London og New York.

3.  Rjúpan.

4.  Hrafninn.

5.  Valhöll.

6.  Snerting, bragð, lykt, sjón, heyrn.

7.  Bruce Willis.

8.  Að hann var búinn að vera dauður alla mynd­ina.

9.  Mið­flokk­inn.

10.  Sigfús Daðason.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Wilma Flint­stone.

Bíllinn á neðri mynd­inni kom við sögu í mynd­unum Back to the Future.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár