Milljarða tekjur Íslands af losunarheimildum

Íslenska ríkið hefur hagn­ast um tíu millj­arða króna á sölu los­un­ar­heim­ilda. Ólíkt öðrum Evr­ópu­þjóðum setur Ísland sér engin skil­yrði um að nýta þessa fjár­muni til lofts­lags­mála.

Íslenska ríkið hefur haft rúm­lega 10 millj­arða króna í tekjur af sölu los­un­ar­heim­ilda í gegnum við­skipta­kerfi Evr­ópu­sam­bands­ins á nokkrum árum. Ólíkt ríkjum ESB hefur Ísland ekki sett sér nein við­mið um það hversu mikið af þessum tekjum skuli renna beint til verk­efna á sviði lofts­lags­mála eða bar­átt­unnar gegn lofts­lags­breyt­ingum. Þar að auki hefur íslenska ríkið haft rúm­lega 45 millj­arða króna í tekjur af inn­heimtu kolefn­is­gjalds. Sam­an­lagt eru þetta þá rúm­lega 55 millj­arðar króna frá árinu 2010 til árs­ins 2021 af þessum tekjum. 

Ísland hefur átt aðild að við­skipta­kerfi ESB með los­un­ar­heim­ildir frá árinu 2013, en Ísland er þar í sér­stökum hópi, ásamt hinum EES ríkj­unum, sem bjóða sam­eig­in­lega út heim­ildir til kolefn­islos­unar í gegnum upp­boðs­marka þar sem mikið magn los­un­ar­heim­ilda er boðið upp í senn en kaup­endur eru aðal­lega bankar og fjár­mála­fyr­ir­tæki sem selja heim­ild­irnar svo áfram á mark­aði.

Ísland tók í fyrsta sinn þátt í slíku upp­boði …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Doddi Gumm skrifaði
    Frjálst framsal aflaheimilda var heimskuleg en það að gera mengun að markaðsvöru er líklega enn heimskulegri og sýnir að allt er falt fyrir peninga.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár