Manndýr og myrkir dagar

Hvað er á döf­inni dag­ana 25. febr­úar til 17. mars?

Manndýr og myrkir dagar

Afturgöngur og nýburar í ljóðheimum

Hvar? Salurinn

Hvenær? 26. mars kl. 15

Aðgangs­eyrir? Ókeypis

Óðfræði­fé­lagið Boðn heldur mál­þing þar sem velt verður upp þeirri spurn­ingu hvort fríljóð og hefð­bund­inn kveð­skapur til­heyri ólíkum heimum sem ekki ná saman. Heiti mál­þing­ins vísar í þau orð sem Steinn Steinarr lét hafa eftir sér haustið 1950 þegar hann lýsti því yfir að hið hefð­bundna ljóð­form væri loks­ins dautt.

Jór 4x4 Nordic

Hvar? Mengi

Hvenær? 4. mars kl. 20.30

Aðgangs­eyrir? 2.500 kr.

JÓR leikur 4 tón­verk frá 4 Norð­ur­löndum. Sax­ó­fón­kvar­tett­inn JÓR er skand­in­av­ískur hópur sem leikur og kynnir nýja nor­ræna tón­list, bæði klass­íska og sam­tíma.

Flytj­endur:
Anja Nedremo - sópran sax­ó­fónn
Kathrine Oseid - altó sax­ó­fónn
Morten Norheim - tenór sax­ó­fónn
Anna Magn­us­son - baritón sax­ó­fónn

Myrkir músíkdagar

Hvar? Harpa, Norræna húsið, Hall­gríms­kirkja

Hvenær? 1.–8. mars og 11.–12. mars

Aðgangs­eyrir? 18.500 kr. fyrir passa

Tón­list­ar­há­tíðin Myrkir mús­ík­dagar er ein elsta tón­list­ar­há­tíð lands­ins, stofnuð árið 1980 af Tón­skálda­fé­lagi Íslands. Áhersla hátíð­ar­innar er að flytja og kynna nýja íslenska sam­tímatón­list og flytj­endur, í bland við erlend verk og erlenda flytj­endur. 

Einnig er hægt að kaupa miða á ein­staka við­burði

Frekari upp­lýs­ingar á darkmusicdays.is

Benni Hemm Hemm & The Melting Diamond Band II

Hvar? Mengi

Hvenær? 10. mars kl. 20.30

Aðgangs­eyrir? 2.500 kr.

Brjál­æð­ing­arnir í Benna Hemm Hemm & the Melting Diamond Band gáfu út plötu hjá Mengi Records þann 10. febr­úar síð­ast­lið­inn. Nú, sléttum mán­uði síðar, 10. mars, heldur sveitin útgáfu­tón­leika í Mengi.

Platan verður flutt í heild sinni undir mjög fal­legum víd­eó­verkum sem Helgi Örn Pét­urs­son og Egill Eyj­ólfs­son skópu.

DIMMA - Stórtónleikar í Eldborg

Hvar? Harpa

Hvenær? 12. mars kl. 19.30

Aðgangs­eyrir? 4.900–12.900 kr.

DIMMA hefur um ára­bil verið ein allra vin­sælasta rokk­sveit lands­ins.

Þá hefur sveitin einnig hlotið mikið lof fyrir tón­leika sína, sem þykja gríð­ar­legt sjón­ar­spil og kraft­ur­inn og orkan frá þeim lætur engan ósnort­inn.

Á tón­leik­unum í Eldborg verða leikin lög af Þögn ásamt úrvali af eldri lögum og allt lagt í að gera tón­leik­ana að ógleym­an­legum við­burði sem eng­inn rokkunn­andi má missa af!

Storytelling + Poetry W/ Electronics | Anna Iachino & Arnold Ludvig

Hvar? Mengi

Hvenær? 17. mars kl. 20.30

Aðgangs­eyrir? 2.500 kr.

Sagna- og ljóða­kvöld með raf­tón­list.

Anna Iachino flytur ljóð og segir sögur undir tón­list leik­inni af Arnold Ludvig frá Færeyjum. Arnold mun spila á bassa, gítar, midi-hljóm­borði og pedala.

Anna fléttar inn eigin hljóðum sem hún fram­kallar með hreyf­ingum fóta sinna og beit­ingu radd­ar­innar þegar hún flytur ljóðin.

Manndýr – barnasýning

Hvar? Tjarn­ar­bíó

Hvenær? 13. mars kl. 13 og kl. 15.30

Aðgangs­eyrir? 3.100 kr.

Manndýr er þátt­töku­sýn­ing um hlut­verk manns­ins út frá sjón­ar­horni barna. Í sýn­ing­unni er sam­band barna og full­orð­inna skoðað og spurn­ing­unni um hlut­verk þeirra innan heims­ins velt upp. Af hverju er mað­ur­inn til? Af hverju er barn til? Hvað gera þau og til hvers?

Kanarí 

Hvar? Þjóð­leik­húsið

Hvenær? 10. og 17. mars

Aðgangs­eyrir? 4.990 kr.

Glæný og bráð­fyndin sketsasýning.

Kanarí er hópur grínista, leik­ara, sviðs- og hand­rits­höf­unda sem hefur gert garð­inn frægan með sam­nefndum sket­sa­þáttum á RÚV. Sýningin er sketsa­sýn­ing og því er fram­vindan ekki heil­steypt heldur eru sagðar stuttar sögur af fjöl­breyttu fólki í alls kyns aðstæðum.

Landsþing hinsegin fólks 

Hvar? Iðnó

Hvenær? 4.–5. mars

Aðgangs­eyrir? Ókeypis!

Kæra hinsegin sam­fé­lag og aðrir gestir! Hjart­an­lega vel­komin á lands­þing hinsegin fólks, 4.–5. mars næst­kom­andi. Fjöldi við­burða, fræðsla, pall­borða, erinda og skemmti­at­riða. Loksins fáum við að hitt­ast aftur, ekki missa af tæki­fær­inu.

Moses Hightower á Húrra

Hvar? Húrra

Hvenær? 10. mars

Aðgangs­eyrir? 3.500 krónur

Árið er 2022. Takt­teg­undin er 6/8. Tungu­málið er íslenska, lík­ams­tján­ingin tak­mörkuð og hljóð­styrkur hóf­legur, en stað­ur­inn er Húrra og loftið er fíl­ings­mettað. Þig langar svo ofboðs­lega að klappa, en lætur frá þér snöggt „vú!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Stundarskráin

Mest lesið

Ástleysið er sárt
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár