Tveir stjórnarmenn Úrvinnslusjóðs segja af sér - Rannsókn í gangi

Bryndís Gunn­laugs­dóttir, stjórn­ar­maður fyrir hönd Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga, og Hlíðar Þór Hreins­son, stjórn­ar­maður fyrir hönd Félags atvinnu­rek­anda og fram­kvæmda­stjóri Heim­il­is­tækja, hafa sagt af sér úr stjórn Úrvinnslu­sjóðs. Rík­is­end­ur­skoðun er nú að rann­saka sjóð­inn.

Hætt
Hætt Tveir stjórn­ar­menn sjóðs­ins hafa hætt á und­an­förnum dögum.

Miklar breyt­ingar hafa átt sér stað í stjórn Úrvinnslu­sjóðs eftir að Stundin hóf  ítar­lega umfjöllun um mál­efni sjóðs­ins. Magnús Jóhann­es­son, nýskip­aður stjórn­ar­for­maður sjóðs­ins, stað­festir í sam­tali við Stundina að tveir stjórn­ar­menn sjóðs­ins hafi sagt af sér.

Nýlega fjall­aði Stundin um allt að 1500 tonn af íslensku plasti sem fannst í vöru­húsi í litlum smábæ í Suður-Svíþjóð. Plastið hefur legið þar í um 5 ár og var aldrei sent í end­ur­vinnslu, en íslensku end­ur­vinnslu­fyr­ir­tækin Terra og Íslenska gáma­fé­lagið fengu greiddar um 100 millj­ónir króna fyrir koma plast­inu í end­ur­vinnslu. Sænska end­ur­vinnslu­fyr­ir­tækið Swerec sagð­ist hafa end­ur­unnið allt plastið og sendi stað­fest­ingar þess efnis á Úrvinnslu­sjóð og voru þær tölur svo not­aðar til að sýna fram á end­ur­vinnslu­hlut­fall íslensk plasts. 

Þrír búnir að segja úr stjórn á stuttum tíma

Þau sem sögðu af sér eru Bryndís Gunn­laugs­dóttir, stjórn­ar­maður fyrir hönd Samband íslenskra sveit­ar­fé­laga, og Hlíðar Þór Hreins­son, stjórn­ar­maður fyrir hönd Félags atvinnu­rek­anda og fram­kvæmda­stjóri Heim­il­is­tækja. Í nóv­em­ber á síð­asta ári, rétt fyrir fréttaum­fjöllun Stund­ar­innar um íslenska plastið í Svíþjóð, sagði Laufey Helga Guð­munds­dóttir, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Úrvinnslu­sjóðs, af sér. Laufey neit­aði ítrek­uðum við­tals­beiðnum Stund­ar­innar rétt fyrir afsögn. Þá neit­aði hún einnig við­tals­beiðni Stund­ar­innar eftir að hún sagði af sér. Í yfir­lýs­ingu á Facebook-síðu sinni sagði hún að hún hafi hætt störfum sem stjórn­ar­for­maður vegna anna, en hún starfar einnig sem lög­maður á laga­skrif­stofu Alþingis. Skrif­stofan sér meðal ann­ars um að vera ráð­gef­andi við laga­setn­ingu um stofn­anir Alþingis, fyrir umboðs­mann Alþingis og Rík­is­end­ur­skoð­anda, en sú stofnun er einmitt að rann­saka sjálfan sjóð­inn.

Ekki enn búið að skipa í öll sætin

Áslaug Hulda Jóns­dóttir, bæj­ar­full­trúi sjálf­stæð­is­manna í Garðabæ, tekur við sæti Bryn­dísar, en ekki hefur verið ákveðið hver tekur við sæti Hlíðars í stjórn Úrvinnslu­sjóðs. Í sam­tali við Stundina segir Magnús Jóhann­es­son að til­kynnt verði á allra næstu dögum hver muni taka sæti Hlíðars Þórs í stjórn sjóðs­ins, en Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverf­is­ráð­herra, sér um að skipa stjórn­ar­með­limi sjóðs­ins eftir til­nefn­ingar þeirra félaga sem eiga full­trúa í sjóðnum. Áslaug Hulda er fyrr­ver­andi starfs­maður íslenska end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæk­is­ins Pure North Recycling í Hvera­gerði, en fyr­ir­tækið er það eina á Íslandi sem end­ur­vinnur plast. Þá átti Áslaug hlut í félag­inu en hún seldi hann í októ­ber á síð­asta ári.

Íslensk sendinefnd mætt til Svíþjóðar

Í morgun mættu íslenskir full­trúar í vöru­húsið fræga í Påryd. Einn full­trúi frá Úrvinnslu­sjóði, einn full­trúi frá Terra og sá síð­asti frá Íslenska Gáma­fé­lag­inu. Þá mættu einnig tveir full­trúar frá sænska end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæk­inu Swerec.

Stoppuðu stutt

Stoppuðu þeir í um hálf­tíma á svæð­inu en skoð­uðu ekki allt hús­næðið, heldur ein­göngu þar sem hægt var að kom­ast að plast­inu. Hlutverk þeirra er að meta hversu mikið af plast­inu er íslenskt og hvort það hafi verið á ein­hverjum tíma­punkti verið sett í gegnum end­ur­vinnslu­vélar Swerec. Þá voru þeir einnig að skoða hvernig væri hægt að koma bara íslenska plast­inu út úr vöru­hús­inu og skilja allt hitt plastið eftir.

Ómögulegt að ná bara íslenska plastinu

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar var sjálf­stæður ráð­gjafi sendur af Swerec í vöru­húsið fyrir um tveim vikum. Var það nið­ur­staða hans að það væri nán­ast ómögu­legt að taka bara íslenska plastið þar sem mikið af því væri nú þegar búið að bland­ast saman. Þá var það hans mat að ekk­ert af því plasti sem fannst í hús­inu hefði á nokkrum tíma­punkti farið í gegnum end­ur­vinnslu­vélar Swerec, en fyr­ir­tækið fékk greiddar tugi millj­óna frá íslenskum end­ur­vinnslu­fyr­ir­tækjum fyrir að end­ur­vinna plastið.

Alþingi óskaði eftir rannsókn á Úrvinnslusjóði

Þann 31. maí síð­ast­lið­inn sam­þykkti Alþingi Íslands að Rík­is­end­ur­skoðun skyldi gera rann­sókn á starf­semi Úrvinnslu­sjóðs. Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lagði fram beiðn­ina fyrir Alþingi og var hún sam­þykkt með 57 atkvæðum. Rann­sókn­ar­beiðnin er ítar­leg og er meðal ann­ars kraf­ist svara um hvers vegna rík­is­stofnun, sem árlega veltir millj­örðum króna, hafi ekki skilað árs­skýrslum í yfir fimm ár. 

Í skýrslu­beiðn­inni kemur fram að meðal ann­ars eigi að fjalla um eft­ir­far­andi: „Árs­skýrslur sjóðs­ins síð­ustu fimm ár, hvar megi nálg­ast þær og hvers vegna þær hafi ekki verið gerðar opin­berar, hvaða reglur gildi um greiðslur úr sjóðnum og hvaða annað mat fari fram við ákvörðun um hvert greiða skuli úr sjóðnum?“

For­svars­menn Úrvinnslu­sjóðs mættu á fund umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis þann 21. maí. Tíu dögum seinna var farið fram á beiðn­ina um rann­sókn á sjóðnum.

Þá er einnig kraf­ist svara um hvort Úrvinnslu­sjóður hafi í raun og veru athugað hvort úrgangur, sem sjóð­ur­inn greiddi íslenskum end­ur­vinnslu­fyr­ir­tækjum fyrir að end­ur­vinna, hafi í raun og veru verið end­urunn­inn: „... Hvort Úrvinnslu­sjóður gangi úr skugga um það hjá við­tak­endum greiðslna hvert efnin fari sem greiddur er kostn­aður fyrir og hvort við taki vottuð end­ur­vinnslu­ferli, raun­veru­leg end­ur­vinnsla eða önnur við­ur­kennd ferli áður en greitt er úr sjóðnum. Hvort Úrvinnslu­sjóður fylgi því eftir með öðrum hætti að allar greiðslur úr sjóðnum hafi verið í sam­ræmi við ráð­stöfun og þau lög­mætu mark­mið sem að er stefnt, með það að mark­miði að koma í veg fyrir ofgreiðslur úr sjóðnum.“

Segjast fagna rannsókn Ríkisendurskoðunar

Á heima­síðu Úrvinnslu­sjóðs birt­ist frétt, 18. júní síð­ast­lið­inn, þess efnis að stjórn sjóðs­ins fagni rann­sókn Rík­is­end­ur­skoð­unar. Þá kemur þar einnig fram að rann­sóknin sé kjörið tæki­færi um hvort megi gera betur heldur en það kerfi sem sett upp hefur verið af sjóðnum.

„Að gefnu til­efni skal tekið fram að stjórn Úrvinnslu­sjóðs fagnar fyr­ir­hug­aðri úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar á starf­semi sjóðs­ins og lýsir sig reiðu­búna að vinna með stofn­un­inni að verk­efn­inu. Að mati stjórn­ar­innar gefst þar kjörið tæki­færi til að koma sjón­ar­miðum um bætta úrvinnslu úrgangs á fram­færi og fá úttekt óháðs aðila á því hvað megi gera betur til þess að bæta núgild­andi kerfi. Komi fram athuga­semdir af hálfu rík­is­end­ur­skoð­enda mun sjóð­ur­inn að sjálf­sögðu leggja sig fram um að vinna að úrbótum,“ segir í frétt á heima­síðu Úrvinnslu­sjóðs.

Segja að brestir séu í starfsemi Úrvinnslusjóðs

Í lokin á skýrslu­beiðn­inni taka flutn­ings­menn hennar fram að þeir voni að skýrsla rík­is­end­ur­skoð­anda muni varpa ljósi á hvað það er sem valdi þeim brestum sem virð­ast vera á starf­semi Úrvinnslu­sjóðs. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar er mik­ill titr­ingur innan stjórnar sjóðs­ins vegna rann­sóknar rík­is­end­ur­skoð­anda á starf­semi sjóðs­ins.

„Flutn­ings­menn telja að nauð­syn­legt sé að fela rík­is­end­ur­skoð­anda, sem hefur það hlut­verk að hafa eft­ir­lit með og stuðla að umbótum á fjár­mála­stjórn rík­is­ins og nýt­ingu almanna­fjár, að taka saman skýrslu um málið með hlið­sjón af 6. gr. a laga um rík­is­end­ur­skoð­anda og end­ur­skoðun rík­is­reikn­inga. Flutn­ings­menn binda vonir við að skýrsla rík­is­end­ur­skoð­anda muni varpa ljósi á hvað veldur þeim brestum sem virð­ast vera á starf­semi Úrvinnslu­sjóðs og hvað megi gera til þess að bæta núgild­andi kerfi svo opin­berum fjár­munum sjóðs­ins sé varið í þá umhverf­is­vænu ferla og end­ur­vinnslu sem að er stefnt.“

Tölur sjóðsins ekki réttar

Stundin greindi frá því á síð­asta ári að tölur sem Úrvinnslu­sjóður hafi skilað af sér ættu enga stoð í raun­veru­leik­anum. Samkvæmt tölum sjóðs­ins var um 50% af öllu plasti sem safnað var á Íslandi end­ur­unnið. Í raun var hlut­fallið í kringum 19%, sam­kvæmt rann­sókn norska skila­kerf­is­ins Gröne punkt. Upp komst að sænska plast­end­ur­vinnslu­fyr­ir­tæki Swerec hefði til langs tíma logið til um end­ur­vinnslu­tölur. Meðal fyr­ir­tækja sem sendu plast til Swerec eru Sorpa, Terra og Íslenska gáma­fé­lagið. Þurfti fyr­ir­tækið að greiða skaða­bætur bæði í Noregi og Svíþjóð vegna svindls­ins, en engar skaða­bætur voru greiddar til Íslands þar sem Úrvinnslu­sjóður sótt­ist ekki eftir því, þrátt fyrir að hafa vitað af svindlinu. 

Blaða­maður Stund­ar­innar spurði Ólaf Kjart­ans­son, fram­kvæmda­stjóra Úrvinnslu­sjóðs, hvort tölur hefðu verið lag­aðar hjá Úrvinnslu­sjóði eftir að upp komst um svind­lið hjá Swerec. „Swerec-svind­lið þarna, ég veit ekki alveg nákvæm­lega hvernig það var, þannig ég ætla svo sem ekki alveg að úttala mig um það,“ svar­aði hann.

„Því vissi ég af, að þeir voru að fabúlera ein­hverjar tölur þarna.“
Ólafur Kjart­ans­son
Fram­kvæmda­stjóri Úrvinnslu­sjóðs um afdrif plasts frá Íslandi.

Aðspurður hvort Úrvinnslu­sjóður hefði vitað um svind­lið játar Ólafur því. „Því vissi ég af, að þeir voru að fabúlera ein­hverjar tölur þarna.“ Hann segir að ekki hafi verið brugð­ist við og töl­fræðin ekki leið­rétt. „Nei, það gerðum við ekki,“ segir Ólafur. „Á þessum tíma reikna ég með að við höfum verið að horfa á að um 50% hafi verið að fara í end­ur­vinnslu.“ Eins og kom fram hér að ofan var sú tala mun lægri og sam­kvæmt rann­sókn norska skila­kerf­is­ins kom í ljós að ein­göngu um 19% af öllu plasti sem sent var til Swerec var í raun end­ur­unnið, afgang­ur­inn var brenndur eða sendur til ann­arra landa.

Endurvinnslutölurnar eru ekki raunverulegar

Öllum sorp­fyr­ir­tækjum á Íslandi, sem sjá um að þjón­usta sveit­ar­fé­lög, fyr­ir­tæki eða ein­stak­linga, ber að skila tölum um úrgang til Úrvinnslu­sjóðs. Ekki er bara um til­kynn­ing­ar­skyldu að ræða, heldur skipta þessar tölur máli þegar kemur að því að fá greitt úr Úrvinnslu­sjóði. Samkvæmt verð­skrá Úrvinnslu­sjóðs fær fyr­ir­tæki, sem end­ur­vinnur plast, 65 krónur á hvert kíló af plasti sem er end­ur­unnið. Ákveði hins vegar fyr­ir­tæki að senda plastið í brennslu, til orku­vinnslu, fær fyr­ir­tækið 35 krónur. Samkvæmt tölum Umhverf­is­stofn­unar kemur fram að árið 2019 hafi 56% af öllu plasti sem var safnað verið sent til end­ur­vinnslu.

En því miður er það ekki reyndin og árang­ur­inn mun minni. Umhverf­is­stofnun byggir töl­fræði sína á tölum frá fyrr­nefndum Úrvinnslu­sjóði. Í sam­tali við Stundina segir Ólafur Kjart­ans­son, fram­kvæmda­stjóri Úrvinnslu­sjóðs, að hans eigin tölur stemmi ekki og ein­hver villa hljóti að vera þarna. Svo virð­ist vera að tölur allt til árs­ins 2011 séu að gefa ranga mynd af því hversu vel við Íslend­ingar erum að standa okkur í end­ur­vinnslu á plasti. 

„Þær eiga sér engar stoðir í raunveruleikanum“

Í ljós hefur komið að villan var ein­föld. Samkvæmt skil­grein­ingu Úrvinnslu­sjóðs er búið að end­ur­vinna plast um leið og það er sent úr landi til úrvinnslu­að­ila erlendis. Skiptir þar engu máli hversu mikið af plasti útlendi úrvinnslu­að­il­inn nær að end­ur­vinna. Til dæmis ef íslenskt fyr­ir­tæki sendir 100 tonn af plasti til erlends úrvinnslu­að­ila telj­ast öll 100 tonnin af plasti vera end­urunnin, þrátt fyrir að öll 100 tonnin séu svo á end­anum send í brennslu eða jafn­vel til þriðja heims ríkja. Ólafur segir að Úrvinnslu­sjóður sé að vinna í því að laga þetta og krefja íslensk fyr­ir­tæki, sem senda plast út úr landi, um að fá að vita nákvæm­lega hversu mikið er end­ur­unnið og hversu mikið sé brennt til orku­vinnslu.

Samkvæmt verð­skrám Úrvinnslu­sjóðs fengu íslensk fyr­ir­tæki 65 krónur á hvert kíló af plasti sem er end­ur­unnið en ein­göngu 35 krónur fyrir hvert kíló af plasti sem sent er í orku­vinnslu. Vegna þessa fá íslensk fyr­ir­tæki, meðal ann­ars Sorpa, Terra og Íslenska gáma­fé­lagið, alltaf greitt fyrir að senda plastið í end­ur­vinnslu þrátt fyrir að langstærstur hluti plast­s­ins rati aldrei í end­ur­vinnslu.

Birgitta Stef­áns­dóttir, sér­fræð­ingur hjá Umhverf­is­stofnun, segir að þessar end­ur­vinnslu­tölur séu ekki raun­veru­legar. „Þær eiga sér enga stoð í raun­veru­leik­anum,“ segir Birgitta hreint út.

Í sam­tali við Stundina stað­festir Umhverf­is­stofnun að engin til­kynn­ing hafi borist frá Úrvinnslu­sjóði vegna svindls­ins, en þeir bera ábyrgð á að skila inn réttum tölum til Umhverf­is­stofn­unar.

Kerfið hvetur til útflutnings á plasti

Í grein­ar­gerð sem fylgdi beiðn­inni kemur fram að kerfi, sem Úrvinnslu­sjóður hefur sett upp hvetji ekki til end­ur­vinnslu á plasti hér á landi, heldur sé það sett upp til að hvetja til útflutn­ings á plasti. Um 99% af plasti, sem Íslend­ingar flokka sam­visku­sam­lega, er fluttur úr landi.

„Mik­il­vægi end­ur­vinnslu er mikið rætt í nútíma­sam­fé­lagi og umhverf­is­mál verða sífellt fyr­ir­ferð­ar­meiri í umræð­unni. Síðustu miss­eri hefur verið tals­vert fjallað um end­ur­vinnslu á íslensku sorpi, ekki síst plasti. Stór hluti þess plasts sem fellur til hér á landi er sendur úr landi til end­ur­vinnslu, sem sætir furðu margra. Bent hefur verið á að núgild­andi lagaum­hverfi og kerfi sem þessum málum eru búin hér á landi hvetji ekki til end­ur­vinnslu innan lands heldur til þess að plast sé flutt til útlanda með til­heyr­andi kolefn­is­spori.“

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Villi Bald skrifaði
    Takk fyrir þessa umfjöllun Stundin. Þið standið vaktina og þorið að hreyfa við málum sem aðrir ekki þora. Mig langar að vita meira um úrvinnslumálin okkar. Hvað verður t.d. af pappanum? Er hann endurunnin hér heima eða endar hann í haug í Svíþjóð eða jafnvel útá túní í Malasíu?
    0
  • Grétar Reynisson skrifaði
    Endilega að fá mannskap í að sortera „íslenska plastið” frá öðru plasti og fá það bara heim aftur 🥴
    0
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Takk Stundin. þið eruð best
    0
  • "það væri nánast ómögulegt að taka bara íslenska plastið þar sem mikið af því væri nú þegar búið að blandast saman" Skiptir nokkru máli hvort plastið sé íslenskt eða ekki? skiptir ekki meira mála að taka jafn mikið magn af plasti sem var sent í vöruhúsið og flytja til endurvinnslu og sinna þannig þeirri skyldu að endurvinna sinn hluta?
    Takk fyrir að vera varðhundur og fjalla um málið! Nauðsynlegt að axla ábyrgð og sinna vel þessu mikilvæga hlutverki að endurvinna efnivið
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Plastið fundið

RannsóknPlastið fundið

Heil­brigð­is­eft­ir­litið vissi víst af ólög­legri plast­urðun við Skálholt

Heil­brigð­is­eft­ir­lit Suð­ur­lands vissi í meira en þrjú ár af lög­brotum end­ur­vinn­nslu­fyr­ir­tæk­is­ins Terra án þess að aðhaf­ast neitt í mál­inu. Fram­kvæmda­stjóri eft­ir­lits­ins fékk sjálf senda ábend­ingu um málið en sagð­ist þremur árum seinna aldrei hafa heyrt af því áður. Hún segir ekki ástæðu til að beita við­ur­lögum gegn fyr­ir­tæk­inu.

9 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár