Hörður „gengst við því“ að vera sá sem misnotaði yfirburðarstöðu sína gagnvart Jódísi

Hörður J. Odd­fríð­ar­son, dag­skrár­stjóri göngu­deildar SÁÁ á Akureyri, segir í sam­tali við Stundina að hann gang­ist við því að vera mað­ur­inn sem mis­not­aði yfir­burð­ar­stöðu sína gagn­vart Jódísi Skúla­dóttur þing­konu Vinstri grænna. Hörður er kom­inn í leyfi frá störfum hjá SÁÁ og hefur í dag sagt sig frá ýmsum starfs­skyldum, meðal ann­ars sem for­maður full­trúa­ráðs Sam­fylk­ing­ar­innar. Þá hefur hann sagt sig úr stjórn Sund­sam­bands Íslands.

Hörður „gengst við því“ að vera sá sem misnotaði yfirburðarstöðu sína gagnvart Jódísi

Hörður J. Odd­fríð­ar­son seg­ist í sam­tali við Stundina hafa „dregið við sig“ að svara fyr­ir­spurnum um hvort hann væri mað­ur­inn sem Jódís Skúla­dóttir, alþing­is­kona nefndi í status á Facebook í fyrra­dag,  „Ég gengst við því“ segir Hörður hins­vegar í sam­tali við Stundina og bætir við að hann sé að klára yfir­lýs­ingu þess efnis sem hann muni svo senda frá sér. Val­gerður Rún­ars­dóttir, for­stjóri Vogs segir að Hörður sé kom­inn í leyfi frá störfum sínum fyrir SÁÁ og málið sé til skoð­unar hjá sam­tök­unum.  

Jódís lýsti því að maður sem mis­not­aði yfir­burða­stöðu sína gagn­vart henni hefði tekið á móti henni þegar hún var send í eft­ir­með­ferð á Stað­ar­felli þremur árum síðar.

„Þegar ég mætti með rút­unni í eft­ir­með­ferð á Stað­ar­fell í Dölum tók á móti mér maður sem var kanóna innan SÁÁ, sá sami hafði mis­notað yfir­burð­að­stöðu sína gagn­vart mér þrem árum fyrr. Ég hafði þá verið 17 ára, hann 30 ára. Hann, edrú, gaf mér áfengi, káf­aði á mér og tróð tung­unni upp í mig. Ég forð­aði mér en hann mætti heim til mín um nótt­ina og vildi kom­ast inn.“

Á hans ábyrgð að stíga fram 

Jódís sagði nóg komið og kall­aði eftir aðgerðum því „hvert ömur­lega málið hafi rekið annað árum saman innan SÁÁ“.  Hörður segir í sam­tali við Stundina að hann hafi viljað að taka til­lit til Jódísar og því ekki sagt frá því að hann væri mað­ur­inn sem um ræddi.  ,,En ég gengst við þessu og hefði gjarnan viljað ræða við hana en ég rengi að sjálf­sögðu ekki frá­sögn Jódísar á neinn hátt og mun birta yfir­lýs­ingu um málið hið fyrsta.” segir Hörður. 

„Ég gengst við því“

Stundin náði tali af Jódísi og bar þessi orð undir hana. „Ég tók ákvörðun um að nafn­greina hann ekki af því að það er á hans ábyrgð að stíga fram.“

Hörður hefur sagt sig frá öllum trún­að­ar­störfum fyrir Sam­fylk­ing­una vegna máls­ins, en hann var for­maður full­trúa­ráðs flokks­ins. 

Hörður seg­ist einnig vera búinn að segja sig úr stjórn Sund­sam­bands Íslands  en hann var for­maður sam­bands­ins um ára­bil. „Mold­viðrið í SÁÁ und­an­farið gerir það að verkum að ég ætla að draga mig í hlé frá trún­að­ar­störfum fyrir Sam­fylk­ing­una og úr Sund­sam­band­inu.“

Heldur áfram hjá SÁÁ  enn um sinn

Aðspurður hvort hann ætli að halda áfram að vinna hjá SÁÁ þar sem hann er dag­skrár­stjóri göngu­deildar á Akureyri seg­ist hann halda áfram, enn um sinn, að sinna þeim verkum sem yfir­menn sínir hjá SÁÁ muni fela sér.  „Þetta sam­tal er ekki búið milli mín og minna yfir­manna hjá SÁÁ,“ segir Hörður.

Hann seg­ist hafa gengið of langt í að gagn­rýna Sjúkra­trygg­ingar Íslands en sem kunn­ugt er hafa Sjúkra­trygg­ingar kært SÁÁ til sak­sókn­ara vegna þús­unda til­hæfu­lausra reikn­inga og krafið sam­tökin um 174 millj­óna króna end­ur­greiðslu. „Sú skoðun teng­ist að nokkru leyti verk­efnum sem ég hef haft með að gera og kostar mikla vinnu og yfir­legu. Ég þarf eins og aðrir þegar ég sé fréttir af því að verið sé að kæra það að setj­ast yfir það og athuga hvort ein­hver fótur sé fyrir því þegar sak­sókn­ari bankar uppá,“ segir Hörður og aðspurður um gagn­rýni sína á störf Sjúkra­trygg­inga í Frétta­blað­inu fyrir nokkrum dögum síðan vegna máls­ins. Þar sak­aði Hörður Sjúkra­trygg­ingar Íslands um að hafa framið brot við rann­sókn máls­ins. 

Þá seg­ist hann enn vera á þeirri skoðun að starfs­stétt ráð­gjafa sé sýndur hroki í bréfi SÍ en það skipti ekki máli þegar upp sé staðið. „Ég var of fljótur á mér þegar ég gagn­rýndi SÍ sem er bara að vinna sína vinnu,“ segir Hörður. 

Val­gerður Rún­ars­dóttir, for­stjóri Vogs stað­festir við Stundina að Hörður sé enn starf­andi hjá SÁÁ en að málið sé til skoð­unar þar.  Hún segir að rann­sókn á mál­inu hafi byrjað hjá SÁÁ þegar hún sá skrif Jódísar Skúla­dóttur alþing­is­konu. Val­gerður seg­ist hafa sent Jódísi skila­boð og beðið um að fá að heyra í henni.  „Ég spurði hvort sá sem hún væri að skrifa um væri starfs­maður hjá SÁÁ núna. Hún stað­festi það og þá fór af stað rann­sókn á mál­inu hér hjá okkur. Atburð­ur­inn sem Jódís segir frá átti sér stað áður en starfs­mað­ur­inn kom til vinnu hjá SÁÁ, hins vegar var hann sann­ar­lega að vinna hjá sam­tök­unum þegar Jódís kom í með­ferð eins og hún lýsir sjálf,“ segir Val­gerður og bætir við að nú sé verið að skoða málið út frá starf­sem­inni í dag. , ,Verklag í þessum málum er gjör­breytt hjá sam­tök­unum en það er alltaf hægt að gera betur og læra af því sem gerst hefur í for­tíð­inni“ segir Val­gerður Rún­ars­dóttir, for­stjóri Vogs.

Hörður J. Odd­fríð­ar­son sendi eft­ir­far­andi til­kynn­ingu eftir að Stundin birti frétt um málið síð­degis: 

Yfir­lýs­ing varð­andi sögu Jódísar Skúla­dóttur alþing­is­manns 

  

Jódís Skúla­dóttir, þing­maður VG, hefur greint frá atviki sem hún varð fyrir þegar hún var sautján ára og und­ir­rit­aður þrí­tugur. Þremur árum eftir þetta atvik átti sér stað fór hún í með­ferð og þá tók ég á móti henni, þá orð­inn starfs­maður SÁÁ. 

 

Ég fór sjálfur í með­ferð skömmu eftir að þetta atvik átti sér stað og hóf störf hjá sam­tök­unum skömmu síðar.  


Ég rengi ekki frá­sögn Jódísar á nokkurn hátt og bið hana afsök­unar því sem gerð­ist og þeim afleið­ingum sem það hefur haft fyrir hana.  


Ég er í sam­tali við mína yfir­menn hjá SÁÁ um fram­tíð mína og hef óskað eftir því að úttekt verði gerð á mínum störfum þar sl. 25 ár.     

  

Akureyri 27. jan­úar 2022 

Hörður J. Odd­fríð­ar­son

Val­gerður Rún­ars­dóttir, for­stjóri Vogs, hafði sam­band við Stundina rétt í þessu og til­kynnti að Hörður væri kom­inn í leyfi frá störfum sínum fyrir SÁÁ. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna María Sverrisdóttir skrifaði
    Það er enginn að taka hann af lífi. Auðvitað vont og leiðinlegt en hann gengst við að hafa hagað sér eins og fífl gagnvart annarri manneskju í viðkvæmri stöðu. Það er gott. Ég hef enga trú á að hann sé illmenni
    0
  • Laufey Jóhannesdóttir skrifaði
    Er ekki doldið langt gengið að maðurinn sé tekinn af lífi fyrir eitthvað fylleríisrugl fyrir 30 árum eða svo ef hann hefur lifað flekklausu lífi síðan og jafnvel getað nýtt reynslu sína af ruglinu til að hjálpa oðrum? Tveir alkar á fylleríi kann yfirleitt ekki góðri lukku að stýra og fáheyrt að það þurfi að neyða áfengi ofaní virka alkóhólista.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár