650. spurningaþraut: Hér er spurt um persónur og bækur Halldórs Laxness

650. spurningaþraut: Hér er spurt um persónur og bækur Halldórs Laxness

Þessi þraut snýst um per­sónur í verkum Halldórs Laxness.

Og fyrri auka­spurn­ing er þessi:

Hvaða per­sóna Halldórs Laxness mundar öxi hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða skáld­sögu Halldórs kemur fyrir per­sónan Árni Árnason sem að vísu gengur langoft­ast undir lat­nesku nafni?

2.  Guð­bjartur Jónsson er aftur á móti aðal­per­sóna í skáld­sög­unni ...?

3.  Hvaða skáld­mælta per­sóna Halldórs skynj­aði mjög kraft­birtín­g­ar­hljóm guð­dóms­ins?

4.  Hvaða per­sóna Halldórs gerði við prímusa?

5.  Salvör Val­gerður heitir ein af kven­per­sónum Halldórs, reyndar þekkt­ust undir gælu­nöfnum sínum tveim. En hvað hét mamma hennar?

6.  Steinar undir Steina­hlíðum hét einn af bændum Halldórs. Hann fór í merki­legt ferða­lag fyrst til danska kóngs­ins en svo til Ameríku. Hvað heitir bókin þar sem segir frá ferðum Steinars um heim­inn?

7.  Ásta Sóllilja — í hvaða bók birt­ist hún?

8.  Í skáld­sögu eftir Halldór kemur fyrir söngv­ar­inn Garðar Hólm sem allir á Íslandi halda að sé heims­frægur snill­ingur, en það er kannski eitt­hvað málum blandið. Í hvaða sögu birt­ist hann?

9.  „Áðan flugu tveir svanir austr­yfir.“ Svo hefst ein elsta skáld­saga Halldórs, Vefarinn mikli frá Kasmír, þar sem aðal­per­sónan er reik­ull ungur piltur í leit að æðri gildum. Hvað heitir hann?

10.  Hrifning þessa unga pilts á ungri stúlku er leið­ar­hnoða í bók­inni og er hún í hans augum ýmist hin æðsta madonna eða ígildi djöf­ul­legs freist­ara. Hvað heitir stúlkan?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvern af körlum Halldórs er Ilmur Krist­jáns­dóttir að leika á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Íslands­klukk­unni.

2.  Sjálf­stæðu fólki.

3.  Ólafur Kárason.

4.  Jón prímus.

5.  Sig­ur­lína.

6.  Para­dís­ar­heimt.

7.  Sjálf­stæðu fólki.

8.  Brekku­kotsan­nál.

9.  Steinn Elliði.

10.  Diljá.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Jón Hregg­viðs­son.

Á neðri mynd­inni er Ilmur í gervi Jóns Grind­vík­ings.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár