649. spurningaþraut: Fjölmennasta borgin í Florída, og annað smálegt

649. spurningaþraut: Fjölmennasta borgin í Florída, og annað smálegt

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver var skamm­stöfun Stormsveita þýska nas­ista­flokks­ins sem stofn­aðar voru 1920? 

2.  Hvaða hljóm­sveit flutti lagið Hey Jude?

3.  Hvar er Garð­skaga­viti — nákvæm­lega?

4.  Úr hvaða meg­in­jökli fellur Skaftá?

5.  Eftir róstur Sturl­unga­aldar komust Íslend­ingar á einn eða annan hátt undir væng Nor­egs­kon­ungs. Hvaða ár var yfir­leitt miðað við að þetta hafi gerst?

6.  Hver samdi óper­una Brúðkaup Fígarós?

7.  Hún fædd­ist árið 1961, dóttir fjöl­miðla­mó­guls sem mikið veldi var á um tíma. Vinátta hennar og sam­band við fjár­afla­mann, sem reynd­ist vera kyn­ferð­is­glæpa­maður, hefur nú leitt til þess að hún hefur verið dæmd fyrir aðild að glæpum hans. Hvað heitir hún?

8.  Árið 1984 var frum­sýnd í Banda­ríkj­unum kvik­myndin Blood Simple. Henni stýrðu bræður tveir sem síðan hafa gert fjölda kvik­mynda saman og flestallar vakið heil­mikla athygli, en engin þó eins og myndin Fargo frá 1996. Hvað er eft­ir­nafn bræðr­anna?

9.  Í hvaða á er Gullfoss?

10.  Hvað heitir fjöl­menn­asta borgin í Florida-ríki í Banda­ríkj­unum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða borg­ar­stæði má sjá hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  SA.  SS-sveit­irnar voru svo­lítið annað.

2.  Bítl­arnir.

3.  Yst á Garð­skaga — nyrst á Reykja­nesskaga. Það verður að fylgja sög­unni að vit­inn er sem sagt á tá skag­ans, ekki hælnum.

4.  Vatna­jökli.

5.  1262.

6.  Mozart.

7.  Ghislaine Maxwell. 

8.  Coen.

9.  Hvítá.

10.  Jacksonville.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Greta Garbo.

Á neðri mynd­inni er Reykja­vík. Suður snýr upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár