648. spurningaþraut: Texta fyrir hvaða söngleik samdi virðulegt Nóbelsskáld?

648. spurningaþraut: Texta fyrir hvaða söngleik samdi virðulegt Nóbelsskáld?

Fyrri auka­spurn­ing:

Myndin hér að ofan prýðir leir­ker fornt en það var gert ... hvar?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í fram­haldi af fyrri spurn­ingu, hvað skyldu þær heita, hetj­urnar sem þar heyja frægt ein­vígi sem örlög heillar borgar gætu ráð­ist af? Nefna þarf kapp­ana báða.

2.  Hver samdi leik­rit um Óþello?

3.  Í hvaða ríki var Tony Blair um tíma æðstur valda­maður?

4.  Breskt Nóbelskáld (sem reyndar fædd­ist í Banda­ríkj­unum) orti virðu­leg kvæði um lífið og dauð­ann og annað þvíum­líkt en átti fleiri hliðar. Skáldið orti líka létt­úð­ugar dýra­vísur sem voru 1981 not­aðar sem uppi­staða í vin­sælum söng­leik. Hvað heitir söng­leik­ur­inn?

5.  En hver var það sem samdi mús­ík­ina við þann söng­leik?

6.  Hvað heitir sá rót­tæki femínista­hópur sem hefur mjög látið að sér kveða í yfir­stand­andi MeToo bylgju?

7.  Cherokee er nafnið á stórri jeppa­teg­und sem fram­leidd er í Banda­ríkj­unum. Hvaða fyr­ir­tæki fram­leiðir jeppa þessa?

8.  En hvaðan er nafnið Cherokee ann­ars runnið?

9.  Piltur einn í Bibl­íu­sög­unum var í upp­á­haldi hjá föður sínum svo hinir mörgu bræður hans urðu öfund­sjúkir. Þeir gripu þá til þess ráðs að selja hann í þræl­dóm til ann­ars lands. Hvað hét piltur?

10.  Bræðr­unum hefnd­ist þó fyrir, því hann varð mekt­ar­maður í hinu nýja landi og hafði brátt öll ráð þeirra í hendi sér. Hvaða land var það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Úr hvaða bíó­myndatöð er myndin hér að neðan?

***

Svör við auka­spurn­ingum:

1.  Akkiles og Hektor.

2.  Shakespe­are.

3.  Bret­landi.

4.  Cats.

5.  Andrew Lloyd Webber.

6.  Öfgar.

7.  Jeep eða Chrysler — hvorttveggja rétt.

8.  Ein af frum­byggja­þjóðum í Banda­ríkj­unum.

9.  Jósef.

10.  Egifta­land.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Vasinn á efri mynd­inni er grískur.

Neðri myndin vísar til Hunger Games-flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár