651. spurningaþraut: „Þá grét Jesús.“ En hvers vegna?

651. spurningaþraut: „Þá grét Jesús.“ En hvers vegna?

Fyrri auka­spurn­ing:

Úr hvaða kvik­mynd er skjá­skotið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Og meðal ann­arra orða, hvað heitir leik­konan?

2.  Hver var for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á undan Bjarna Bene­dikts­syni?

3.  En hver var for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins á undan Bjarna Bene­dikts­syni eldra?

4.  „Hann reynir af öllum mætti að vera góður refur.“ Um hvern var þetta sagt?

5.  Við hvaða götu í Reykja­vík stendur Þjóð­leik­húsið?

6.  Um hvað evr­ópsku stór­borg fellur áin Spree?

7.  Eitt stysta vers Bibl­í­unnar er 35. vers 11. kap­ít­ula Jóhann­es­ar­guð­spjalls. Það hljóðar svo: „Þá grét Jesús.“ En af hverju grét Jesús?

8.  Hvað heitir hinn íslenski tals­maður Wikileaks?

9.  Stofn­andi Wikileaks er aftur á móti Julian Assange. Frá hvaða landi kemur hann?

10.  Amgen heitir alþjóð­legt fyr­ir­tæki, sem rekur frægt dótt­ur­fyr­ir­tæki á Íslandi. Hvað heitir íslenska dótt­ur­fyr­ir­tækið?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir rétt­ur­inn á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ursula Andress.

2.  Geir Haarde.

3.  Ólafur Thors.

4.  Mikka Ref.

5.  Hverf­is­götu.

6.  Berlín.

7.  Af því að Lasarus vinur hans var dáinn.

8.  Kristinn Hrafns­son.

9.  Ástralíu.

10.  Íslensk erfða­grein­ing.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri mynd­inni er úr kvik­mynd­inni Dr.No.

Neðri myndin er af mússaka. Ýmsir skyldir réttir eru til en þetta er samt mússaka og ekk­ert annað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár