610. spurningaþraut: Nokkrar léttar spurningar um Íslendingasögur

610. spurningaþraut: Nokkrar léttar spurningar um Íslendingasögur

Í þetta sinn eru allar spurn­ingar um Íslend­inga­sögur. Fyrri auka­spurn­ing er þessi:

Úr hvaða Íslend­inga­sögu er hin útsaum­aða mynd hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver er lengsta Íslend­inga­sagan?

2.  Höfundar allra Íslend­inga­sagna eru ókunnir en margir þykj­ast þó vissir um hver hafi skrifað Egils­sögu. Hver er sá?

3.  Í Egils­sögu segir frá feðg­unum Skalla­grími og Agli. Þeir áttu hvor um sig bróður og hétu bræður þeirra feðga einu og sama nafn­inu. Hvað hétu þeir báðir, bræður Skalla­gríms og Egils?

4.  Í hvaða Íslend­inga­sögu segir mest frá Auði djúpúðgu?

5.  Hver sagði: „Þeim var ég verst er ég unni mest?“

6.  Hvaða Íslend­inga­sögu end­ur­skrif­aði Halldór Laxness og gerði úr meist­ara­verkið Gerplu?

7.  „Bergþóra mælti, er menn sátu yfir borðum: "Gjafir eru yður gefnar feðgum, og verðið þér litlir drengir af, nema þér launið [gjaf­irnar].““ — Svo segir í Njálu. Hverjar voru gjafir þær sem sonum Bergþóru höfðu verið gefnar að henni sögn?

8.  Á öðrum stað í Njálu segir á einum stað: „Fögur er hlíðin svo að mér hefir hún aldrei jafn­fögur sýnst - bleikir akrar og ...“ Hvað kom svo í lýs­ing­unni á hlíð­inni?

9.  Þegar sögu­hetjan kvaðst ætla að snúa við, þá mælti bróðir hetj­unnar: „Gjör þú eigi þann ...“ hvað?

10.  Vitað er um eina Íslend­inga­sögu sem hefur glat­ast. Í hand­rit­inu Möðru­valla­bók er eyða milli tveggja sagna og þar standa þessi orð, skila­boð eins skrif­ara til ann­ars: „Láttu rita hér við [...] sögu [...] Mér er sagt að Grímur eigi hana.“ Hvað hét mað­ur­inn sem þessi týnda Íslend­inga­saga var kennd við?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér er erlend teikn­ing eftir atriði úr hvaða Íslend­inga­sögu?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Njála, Brennu-Njáls­saga.

2.  Snorri Sturlu­son.

3.  Þórólfur.

4.  Laxdælu.

5.  Guðrún Ósvíf­urs­dóttir.

6.  Fóst­bræðra­sögu.

7.  Þeir voru kall­aðir tað­skegg­lingar í háð­ung­ar­skyni.

8.  Slegin tún.

9.  ... þann óvinafagnað.

10.  Gauks Trand­ils­sonar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin sýnir vörn Gunnars á Hlíð­ar­enda í Brennu-Njáls­sögu.

Neðri myndin er úr Grett­is­sögu og sýnir galdra­kerl­ingu magna seyð á hendur Gretti í Drangey.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár