611. spurningaþraut: Hverjir vita hvað turn einn í London heitir?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða sögu­hetju er verið að túlka á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi er borgin Narvik?

2.  Annalena Baerbock var á æsku­árum lands­liðs­maður í fim­leikum á trampólíni en hefur nú nýtekið við býsna valda­miklu starfi í Evr­ópu­ríki einu. Hvaða starf er það?

3.  Hvaða á fellur til sjávar í botni Hval­fjarðar?

4.  Hið svo­nefnda „fót­bolta­stríð“ braust út milli tveggja landa árið 1969. Það var alvöru stríð, eða stefndi að minnsta kosti í að verða það, en stríðs­á­tökum var afstýrt eftir fáeina sól­ar­hringa. Nefnið að minnsta kosti annað ríkið sem átti hlut að þessu stríði. Ekkert er dregið frá þótt hitt ríkið kunni að vera rangt.

5.  Gervi­lim­rur hét bók sem út kom í fyrra og hafði að geyma lim­rur í léttum dúr eftir nýlát­inn lista­mann. Hver var sá?

6.  Hversu margar ljóð­línur eru ann­ars í venju­legri limru?

7.  Hvaða fyr­ir­tæki fram­leiðir leikja­tölv­una Playstation?

8.  Hvað hét fyrsti íslenski ráð­herr­ann?

9.  Hver samdi ljóða­bæk­urnar Ljóð vega salt, Ljóð vega menn og Ljóð vega gerð?

10.  Í nágrenni London var þorp með turni sem var not­aður sem við­miðun þegar kerfi lengd­ar­bauga var teiknað upp fyrir Jörðina. Sami turn var not­aður til tíma­setn­ingar og klukkan ann­ars staðar í heim­inum reiknuð út frá honum. Nú er þorpið vaxið saman við London en turn­inn er þó enn á sínum stað. Hvað heita þorpið og turn­inn? 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Noregi.

2.  Hún er nýr utan­rík­is­ráð­herra Þýska­lands.

3.  Botnsá.

4.  Stríðið var háð milli El Salvador og Honduras.

5.  Gísli Rúnar.

6.  Fimm.

7.  Sony.

8.  Hannes Hafstein.

9.  Sigurður Pálsson.

10.  Greenwich.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er leik­ari að túlka Zorro.

Á neðri mynd­inni er stytta af gyðj­unni Aþenu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár