609. spurningaþraut: Þingmenn, hafnarborg, súsjí og útdauð fuglategund

609. spurningaþraut: Þingmenn, hafnarborg, súsjí og útdauð fuglategund

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða konu má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Algengt er að þing­menn séu sóttir á fjöl­miðla. Hver var reynd­asti fjöl­miðla­mað­ur­inn sem sett­ist í fyrsta sinn á þing nú eftir síð­ustu kosn­ingar?

2.  Mun fátíð­ara er að kunnir íþrótta­menn setj­ist á þing. Á þingi nú situr þó einn fyrr­ver­andi þjálf­ari bæði hand­bolta- og fót­boltaliða. Hver er sá?

3.  Í hvaða landi er hafn­ar­borgin Alex­andría?

4.  Í hvaða landi er súsjí upp­runnið?

5.  Árið 1598 eru til fyrstu skráðu heim­ild­irnar um fugla­teg­und eina sem bjó á afskekktri eyju. Árið 1662 voru sjó­menn búnir að útrýma fugl­inum ger­sam­lega. Hvað er fugla­teg­und þessi nefnd?

6.  En á hvaða eyju — og hvergi ann­ars staðar — bjó fugl­inn?

7.  Hver leik­stýrði kvik­mynd­inni Vertigo árið 1958?

8.  Gemma Chan heitir bresk leik­kona, tæp­lega fer­tug, og ættuð frá Hong Kong. Hún leikur eitt helsta hlut­verkið — Sersi — í einni af vin­sæl­ustu kvik­myndum árs­ins 2021. Hvað heitir sú mynd?

9.  Árið 1844 gerð­ist í Reykja­vík merki­legur atburður, því þá var end­ur­reist þar stofnun sem hafði legið í lág­inni í tæpa hálfa öld. Hvaða stofnun var það?

10.  Hvaða tón­list­ar­maður gaf út fyrstu stóru plötu sína árið 2003 og hét sú Dangerously in Love? Áður hafði tón­list­ar­mað­ur­inn verið hluti af mjög vin­sælu tríói.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fugl er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sigmar Guð­munds­son.

2.  Willum Þór.

3.  Egifta­landi

4.  Japan.

5.  Dódó-fugl­inn.

6.  Máritíus.

7.  Hitchcock.

8.  Eternals.

9.  Alþingi.

10.  Beyoncé.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er söng­konan Andrea Gylfa­dóttir.

Á neðri mynd­inni er jaðrakan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár