Vitneskja um fjögur kynferðisbrotamál var til staðar innan KSÍ

Guðni Bergson, fyrr­ver­andi for­maður KSÍ, veitti vill­andi upp­lýs­ingar um vit­neskju sam­bands­ins um kyn­ferð­is­brot að mati úttekt­ar­nefndar. Geir Þor­steins­son, fyrr­ver­andi for­maður, er einnig gagn­rýndur.

Vitneskja um fjögur kynferðisbrotamál var til staðar innan KSÍ
Sagði ósatt Guðni vissi af frá­sögnum um kyn­ferð­is­brot í ágúst þegar hann neit­aði fyrir að til­kynn­ingar hefðu borist til KSÍ. Mynd: mbl/ Eggert Jóhannesson

Guðni Bergsson, fyrr­ver­andi for­maður KSÍ, veitti vill­andi upp­lýs­ingar í ágúst síð­ast­liðnum þegar hann sagði að KSÍ hefðu ekki borist ábend­ingar um kyn­ferð­is­brot leik­manna íslenska karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu. Guðni hafði þá þegar verið upp­lýstur um ásökun á hendur lands­liðs­fyr­ir­lið­anum Aroni Einari Gunn­ars­syni og Eggerti Gunnþóri Jónssyn, fyrr­ver­andi lands­liðs­manni. Vit­neskja var til staðar innan KSÍ um fjórar frá­sagnir þar sem leik­menn eða starfs­menn sam­bands­ins hefðu beitt kyn­ferð­is­legu ofbeldi.

Þetta kom fram á fundi úttekt­ar­nefndar ÍSÍ sem rann­sak­aði við­brögð og máls­með­ferð KSÍ vegna kyn­ferð­is­brota­mála sem tengj­ast lands­liði Íslands og KSÍ. Í mál­inu sem teng­ist Aroni og Eggerti fékk Guðni vit­neskju um alvar­legt kyn­ferð­is­of­beldi frá tengda­móður þol­anda, sem jafn­framt er starfs­maður KSÍ.

Gerðar voru athugsemdir við yfirlýsingar Guðna

Nefndin kemst að þeirri nið­ur­stöðu að auk þessa máls hafi verið vit­neskja um þrjú önnur mál þar sem leik­menn eða starfs­menn KSÍ hafi beitt kyn­bundnu eða kyn­ferð­is­legu ofbeldi. Því hafi mál­flutn­ingur Guðna, þegar hann neit­aði fyrir að á borði KSÍ væru frá­sagnir um kyn­ferð­is­legt ofbeldi í við­tölum í ágúst, stang­ast á við stað­reyndir máls­ins. Stjórn­ar­fólk, fram­kvæmda­stjóri KSÍ og starfs­fólk hafi gert veru­legar athuga­semdir við þær yfir­lýs­ingar sem Guðni lét frá sér fara.

Nefndin telur að KSÍ hafi brugð­ist við í þremur af þessum fjórum málum, með því að senda leik­menn heim út lands­liðs­verk­efni eða með því að koma því svo fyrir að starfs­menn störf­uðu ekki framar fyrir KSÍ. Alls var um að ræða þrjá lands­liðs­menn og tvo starfs­menn en þolend­urnir eru fjórir. Þannig hafi ekki fund­ist vís­bend­ingar um að KSÍ hafi boðið kær­anda í máli sem kom til kasta KSÍ í mars 2018 þagn­ar­skyldu­samn­ing, eða með ein­hverjum hætti komið að slíku til­boði.

Nýtti almannatengla vegna ásökunar um heimilisofbeldi

Engu að síður telur nefndin ekki vís­bend­ingar um að í for­mann­s­tíð Guðna hafi verið beitt þöggun eða að atvik beri ein­kenni nauðg­un­ar­menn­ingar innan KSÍ. Nefndin gerir hins vegar athuga­semd við að Geir Þor­steins­son, fyrr­ver­andi for­maður KSÍ, hafi leitað til almanna­teng­ils árið 2016 í kjöl­far þess að honum bár­ust upp­lýs­ingar um að lög­regla hefði verið kölluð á heim­ili lands­liðs­manns vegna grun­semda um heim­il­is­of­beldi.

Það er mat nefnd­ar­innar að þrátt fyrir að konur séu í miklum minni­hluta á skrif­stofu KSÍ og í stjórn sam­bands­ins sé ekki hægt að draga þær álykt­anir að uppi séu aðstæður sem hamli þátt­töku kvenna í starfi sam­bands­ins. Hins vegar starfi KSÍ í alþjóð­legu umhverfi sem sé mjög karllægt. KSÍ hafi með virkum hætti beitt sér und­an­farin ár til að jafna aðbúnað karla- og kvenna­lands­liða. Þá hafi verið gripið til fjöl­margra aðgerða til að auka hlut kvenna innan knatt­spyrnu­hreyf­ing­ar­innar, þá það hafi gengið mis­jafn­lega vel.

Í nefnd­inni sátu Dr. Hafrún Krist­jáns­dóttir sál­fræð­ingur, Kjartan Bjarni Björg­vins­son hér­aðs­dóm­ari, sem jafn­framt var for­maður nefnd­ar­innar og Rán Ingv­ars­dóttir lög­fræð­ingur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Árni Guðnýar skrifaði
    Já hann laug ,hópnauðgun ekki kynferðisbrot hvar er samkendin siðferðið?
    0
  • Sigmundur Guðmundsson skrifaði
    Villandi ? Hann LAUG blákallt !!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár