Ást, öryggi og kærleikur getur fundist ótrúlega víða

Kristín Helga Gunn­ars­dóttir segir frá því hvernig hand­ritið að Ótemjum varð til á undan bók­inni, sem fjallar um stúlku sem er að skríða inn á ung­lings­árin á möl­brotnu heim­ili.

Bók

Ótemjur

Höfundur Kristín Helga Gunnarsdóttir
Bjartur
293 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Fyrst ætla ég að segja ykkur að ótemjur eru kannski flokkuð sem ung­linga­leg full­orð­ins­bók eða full­orð­ins­leg ung­linga­bók eða bara fjöl­skyldu­bók, þetta er alla­vega mjög dramat­ísk fjöl­skyldu­saga um ung­lings­stúlku sem er að skríða upp á ung­lings­árin frá möl­brotnu heim­ili,“ segir rit­höf­und­ur­inn Kristín Helga Gunn­ars­dóttir. „Þessi saga hefur sér­stöðu af mínum bókum vegna þess að venju­lega kannski þró­ast bækur yfir í kvik­mynda­hand­rit en ég skrif­aði drög að kvik­mynda­hand­riti ásamt vini mínum, Ottó Geir Borg, og þessi bók byggir á þeim drögum. Þannig að hand­ritið varð til á undan.“ 

Könnuðust ekki lengur við eigið verk

Upp­runa­lega fór hún að vinna í hand­rit­inu því að það komu konur að máli við þau Ottó sem vildu gera sögur um hesta. „Við byrj­uðum að vinna í því og við vorum búin að gera alls konar per­sónur, skrifa og end­ur­skrifa og hætta við og umturna og snúa við og snara, og á end­anum fannst okkur …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólabókaflóðið 2021

14:33
ViðtalAllir fuglar fljúga í ljósið

Allir fuglar fljúga í ljósið eftir langa og djúpa hug­leiðslu

Í bók­inni Allir fuglar fljúga í ljósið riðl­ast til­vera ráfar­ans Bjartar og lífs­saga hennar brýst fram. Auður Jóns­dóttir rit­höf­undur og skap­ari sög­unnar segir að þegar hún ljúki við að skrifa bók líði henni oft eins og hún sé að ranka við sér eftir langa og djúpa hug­leiðslu. „Þetta er eins og að hafa farið mjög djúpt inn í draum nema núna er draum­ur­inn kom­inn á prent og fólk er að fara að lesa hann,“ segir Auður.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár