Hvar er heima?

Er heima kunn­ug­legur mat­ar­ilmur, staður þar sem má segja sínar skoð­anir eða þar sem fólk deilir skoð­unum með þér, jafn­vel bara góði kodd­inn? Pólskir, litáískir og íslenskir lista­menn vinna með fræði­mönnum að því að finna sam­eig­in­legan sam­ræðu­flöt, sam­eig­in­lega jörð.

Hvar er heima?
Krzysztof Stanisławski safn­stjóri Znaki Czadu, CoCA, sam­tíma­lista­safns­ins í Torun, Norður-Póllandi.

Í byrjun des­em­ber komu til lands­ins pólskir og litáískir lista­menn til að vinna með íslenskum kol­legum sínum, og ekki-lista­fólki sem býr á Íslandi en flutti hingað frá Póllandi og Litáen. Innan handar verða fræði­menn – mann­fræð­ingur, heim­spek­ingur og vist­fræð­ingur. Verk­efnið ber heitið Common Ground og leit­ast við að finna sam­eig­in­legan sam­ræðu­flöt, eða sam­eig­in­lega jörð. Samtalið um verk­efnið hófst fyrir mörgum árum fyrir til­stilli Akademíu skynj­un­ar­innar og bar þá vinnu­tit­il­inn Hvar á ég heima?

Mynd­list­ar­menn­irnir Ragn­hildur Stef­áns­dóttir, verk­efna­stjóri Common Ground, og Anna Eyj­ólfs­dóttir, list­rænn stjórn­andi, stofn­uðu félagið Akademíu skynj­un­ar­innar árið 2007. Í dag starfa við Akademíu skynj­un­ar­innar ásamt tveim fyrr­nefndu lista­menn­irnir Þórdís Alda og Rúrí, Sigríður Þor­geirs­dóttir heim­spek­ingur og Pari Stave list­fræð­ingur. Félagið hefur staðið fyrir stórum sem smáum lista­sýn­ingum hér heima og erlendis.

Sameiginleg jörð

Á síð­asta ári var fyrsta afsprengi verk­efn­is­ins, sýn­ing á Korp­úlfs­stöðum, sam­sýn­ing ólíkra lista­manna sem allir bjuggu á Íslandi en voru frá Póllandi, Litáen og Íslandi. Nú í des­em­ber er verk­efnið tekið á annað stig þegar lista­menn og fræði­menn frá þessum löndum vinna saman, borða saman og tala saman. Ísland er aðeins fyrsta stopp en í vor ferð­ast verk­efnið til Póllands, og í haust til Litáen og hyggst gera svipað þar. Aðstand­endur verk­efn­is­ins velta fyrir sér til­finn­ing­unni um heim­ili, hvar er heima? Hvað er heima? Hvernig er heima? Í aug­lýs­ingum verk­efn­is­ins má sjá vanga­veltur á borð við      hvort heima sé kunn­ug­legur mat­ar­ilmur, eða staður þar sem má segja sínar skoð­anir, eða þar sem fólk deilir skoð­unum með þér, eða jafn­vel bara góði kodd­inn?

Markmið verk­efn­is­ins er að skipt­ast á hug­myndum, þekk­ingu og reynslu á millli stofn­ana, mynd­list­ar­manna og vís­inda­manna, eiga opið sam­tal um hug­takið Common ground og leit­ast við að svara spurn­ing­unni Hvar er heima?

Laus við þjóðernishyggju

Hill­billy fékk einn þeirra sem leggur Ísland undir fót í við­tal um þetta stóra og viða­mikla sam­vinnu­verk­efni þjóð­anna. Sá sem situr fyrir svörum er Krzysztof Stanisławski, safn­stjóri Znaki Czadu, CoCA, sam­tíma­lista­safns­ins í Torun, Norður-Póllandi. Safnið er eitt þeirra sem hafa umsjón með verk­efn­inu.

„Ég er list­gagn­rýn­andi og sýn­ing­ar­stjóri sam­tíma­lista­sýn­inga, hef stýrt um 200 sýn­ingum síðan 1987,“ segir Krzysztof aðspurður um bak­grunn­inn. Sýningar sem Krizysztof hefur stýrt hafa verið um allan heim, víða í Evrópu og í Mongólíu, Suður-Afríku og Banda­ríkj­unum. Krzysztof sér­hæfði sig í vís­inda­legri list­fé­lags­fræði við Menn­ing­ar­stof­unun Háskól­ans í Varsjá 1975–1979. „Ég er ekki vís­inda­maður heldur gagn­rýn­andi, sem þýðir að ég lít frekar á mig sem rit­höf­und en til dæmis list­fræð­ing eða fræði­mann,“ segir Krzysztof og heldur áfram, „masters­rit­gerðin mín var um dada­isma frá 1915, þegar hópur alþjóð­legra lista­manna, aðal­lega lið­hlaupar úr eigin herjum, skap­aði fram­úr­stefnu­list í hlut­lausu og lok­uðu Zürich,“ lýsir Krzysztof.

Krzystof fædd­ist og ólst upp í Varsjá en býr tíma­bundið í Torun. Síðustu 10 til 15 ár hefur hann eytt heilu og hálfu árunum fyrir utan sína eigin land­steina vegna vinnu sinnar við sýn­ingar. Hill­billy er að spá, hvar – eða hvað finnst Krzystof vera heima? „Fjöl­skyldan mín er haldin mik­illi ætt­jarð­ar­ást. Í æsku minni var Pólland háð Sov­ét­mönnum, en mér fannst það kerfi óvið­un­andi. Eftir að her­lög voru sett á árið 1981 var ég virkur með­limur í and-komm­ún­ískum neð­an­jarð­ar­sam­tökum og eftir 1989 varð ég gagn­rýn­andi og sýn­ing­ar­stjóri með það að leið­ar­ljósi að byggja upp nýja pólska menn­ingu. Ég verð að við­ur­kenna að mér mis­lík­aði ekki bara komm­ún­istar heldur líka öfga-hægri­menn. Almennt séð hef ég and­styggð á öllu ólýð­ræð­is­legu valdi. Mér finnst ég vera pólskur og evr­ópskur og þetta er mín sjálfs­mynd, laus við þjóð­ern­is­hyggju.“

Listalíf Póllands

„Svarið við þess­ari spurn­ingu myndi taka langa grein eða bók,“ segir Krzysztof léttur í bragði, aðspurður hvernig lista­lífið sé í Póllandi, en hann gefur Hill­billy stutta svarið. „Pólsk list er mik­ils virði en van­metin í heim­inum. Einu sinni, á tímum járn­tjalds­ins, var lokað á okkur og pól­skri list seink­aði um ára­tug eða tvo miðað við vest­ræna list. Í dag geta þó lista­menn lifað frjálsir og ferð­ast.“ Krzysztof minn­ist líka á lífs­gæðin sem fel­ast í inter­net­inu, og jafn­vel sam­fé­lags­miðlum, fyrir vinn­andi lista­fólk. „Nú er allt opið, sam­starf inn­an­lands og utan og það er alltaf það mik­il­væg­asta.“ Hver heldur Krzysztof að sé besta leiðin til að finna sam­eig­in­legan grund­völl, eða common ground? „Í póli­tískum skiln­ingi gæti það til dæmis verið Evr­ópu­sam­bandið, frá­bært verk­efni sem byggir á skýrum lýð­ræð­is­legum meg­in­reglum. Í hug­mynda­fræði­legum og sið­ferð­is­legum skiln­ingi ætti það að vera vin­átta, þrá eftir skiln­ingi, hrein­skilni fyrir hug­myndum ann­arra og vilji til sam­starfs,“ segir hann og und­ir­strikar að þjóð­ern­is­hyggja leiði aldrei í rétta átt.

Verk­efnið Common Ground snýst um til­finn­ing­una um heim­ili en líka umhverf­is­breyt­ingar. Er list hentug aðferð eða sam­ein­ing­ar­tæki, til að finna sam­eig­in­legan flöt, þvert á ólíka menn­ing­ar­heima? spyr Hill­billy. „Ég hef fulla trú á list,“ svarar Krzysztof ein­fald­lega. Vegir list­ar­innar eru svo sann­ar­lega óút­reikn­an­legir.


Sýnendur eru: Anna Eyjólfs, Paulina Kuhn, Krzysztof Stanisławski, Ragn­hildur Stef­áns­dóttir, Evelina Jan­uškaite, Egle Ganda Bogd­ani­ene, Dawid Paweł Lewandowski, Paulina Tchurzewska, Andrii Dostilev, Sylwia Gorak, Maciej Kwietnicki, Ala Savashevich, Wiola Ujazdowska, Magda Wçgrzyn, Tomasz Markiewka, Páll Haukur Björns­son, Ragn­hildur von Weisshappel, Sindri Leifsson, Anna Sigríður Sig­ur­jóns­dóttir, Pétur Magn­ús­son, Kristín Reyn­is­dóttir, Anna Wojtynska, Tomas Andri­jauskas, Andrius Griga­laitis, Marija Griniuk, Solveiga Gutaute, Živile Minkute, Julija Pociutem og Justas Kazys. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & Hillbilly

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár