Langaði til að lýsa ferðalagi þjóðarinnar úr hinum myrku öldum

Bækurnar höfðu blundað lengi í Hall­grími áður en hann skrif­aði Sextíu kíló af sól­skini og nú Sextíu kíló af kjafts­höggum. Hann fór oft á skíði á Siglu­firði og fannst það stór­kost­legt. Svo heyrði hann sögu af kot­bónda sem var að koma heim rétt fyrir jól en það var svo snjó­þungt að hann fann ekki bæinn sinn. Þar með var upp­hafið komið.

Langaði til að lýsa ferðalagi þjóðarinnar úr hinum myrku öldum
Bók

Sextíu kíló af kjafts­höggum

Höfundur Hallgrímur Helgason
Forlagið - JPV útgáfa
544 blaðsíður
Gefðu umsögn

„Sextíu kíló af kjafts­höggum, þetta er bók um Gest Eilífs­son og fólkið í Seg­ul­firði,“ segir höf­und­ur­inn Hall­grímur Helgason. Um er að ræða sjálf­stætt fram­hald skáld­sögu sem kom út 2018 sem heitir Sextíu kíló af sól­skini.

„Hérna fylgj­umst við áfram með þessu fólki að brasa í byrjun tutt­ug­ustu aldar að reyna að kom­ast út úr torf­kof­unum og inn í nútím­ann. Gestur er þarna kom­inn í ansi lítið torf­kot á Eyrinni. Sem sagt fluttur inn í bæ með sínu fólki, hálf fjöl­skyldan fórst í snjó­flóði í síð­ustu bók þannig að það er lítið eftir af fólki. En samt er hann með fjóra munna á sínu fram­færi og hann þarf að sjá fyrir þessu fólki, hann er eina fyr­ir­vinnan. Þetta er mikið basl en svo fyllist hann góðri von þegar tveir norskir bræður, Eviger-bræður, koma og bjóð­ast til að kaupa gömlu jörð­ina sem er hinum megin við fjörð­inn. Þarna eygir hann bara …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Albert Einarsson skrifaði
    Hlakka til að lesa kjaftshöggin, 60 kíló af sólsskini er frábær. Sigló var ævintýri og Klondike, en Klondike er ekki í Kaliforníu heldur í Yukon í norðvestur Kanada, langt upp í kuldahrollinum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár