576. spurningaþraut: Hvaða ávextir spretta á Malus domestica?

576. spurningaþraut: Hvaða ávextir spretta á Malus domestica?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hér að ofan má sjá útlínur á stóru ríki úti í heimi. Það er rúm­lega sex sinnum stærra en Ísland og heitir ...?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hinar gömlu sýslur eru ekki til lengur sem stjórn­sýslu­ein­ingar, en í þeirri von að ekki séu allir búnir að gleyma þeim, þá spyr ég: Hver af hinum gömlu sýslum var stærst að flat­ar­máli? Nákvæmt svar, takk. 

2.  Hver sendi frá sér skáld­sög­una Höfundur Íslands fyrir tutt­ugu árum?

3.  Guðríður Sím­on­ar­dóttir var kona ein á sautj­ándu öld. Hvert var hennar óvirðu­lega við­ur­nefni?

4.  Hún átti frægan eig­in­mann sem hét ...?

5.  Árið 2007 hóf göngu sína í sjón­varpi þátta­röð sem hefur reynst afar lífseig og vin­sæl og þátta­röðin og stjórn­andi hennar — sem er einn og hinn sami frá upp­hafi — hafa iðu­lega hlotið Eddu­verð­laun. Hvað heitir þátta­röðin? 

6.  Og hvað heitir umsjón­ar­mað­ur­inn?

7.  Hvaða stóra eyja eða eyjar voru numin af mönnum SÍÐAST af öllu land­flæmi Jarðar? — Sjálf­sagt er að taka fram að hér er að sjálf­sögðu ekki átt við Suð­ur­skauts­landið, enda er ekki hægt að segja að það hafi verið numið enn.

8.  Það er svo­lítið flókið að segja til um hvar eru flestar bíó­myndir fram­leiddar í heim­inum. En svo er mikið er víst að til­tekið land í Afríku er — mörgum Evr­ópu­búum að óvörum — ann­að­hvort í fyrsta eða öðru sæti yfir flestar fram­leiddar kvik­myndir á ári. Hvaða land er það?

9.  Í Mið-Asíu má finna ávaxta­tré sem heitir á latensku fræði­máli Malus Sieversii. Tréð var tekið í þjón­ustu manns­ins, kyn­bætt eftir þörfum og vex nú um allan heim undir nafn­inu Malus domestica. Nú eru til þús­undir und­ir­teg­unda og eru alkunnir ávext­irnir not­aðir á hinn fjöl­breyti­leg­asta hátt: étnir hráir, not­aðir í alls­konar bakstur og mat­ar­gerð, og press­aðir í drykki. Hvað heita ávext­irnir sem vaxa á greinum Malus domestica?

10.  Hvar varð Kim Il-sung for­sæt­is­ráð­herra árið 1948?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er þessi reffi­legi karl?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Norður-Múla­sýsla.

2.  Hall­grímur Helgason.

3.  Tyrkja-Gudda.

4.  Hall­grímur Pét­urs­son.

5.  Kiljan.

6.  Egill Helgason.

7.  Nýja Sjáland.

8.  Nígería.

9.  Epli.

10.  Norður-Kóreu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Ríkið er Sómalía.

Karlinn er Pétur mikli Rússa­keis­ari um 1700.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár