577. spurningaþraut: Hvaða nafnar sitja á Alþingi?

577. spurningaþraut: Hvaða nafnar sitja á Alþingi?

Fyrri auka­spurn­ing:

Í hvaða styrj­öld var ljós­myndin hér að ofan tekin?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Vjat­séslav Molotov hét maður nokkur sem and­að­ist 96 ára árið 1986. Hver var hans starfi lengst af?

2.  Víð­frægur kokk­teill er kenndur við Molotov. Hver er aðal vök­vinn í honum?

3.  Smáríkið San Marino er umkringt öðru stærra ríki á alla vegu. Hvaða ríki er það? 

4.  En hvað heitir höf­uð­borgin í San Marino?

5.  Hverjir reistu sér byggðir og bú í blómg­uðu dal­anna skauti; ukust að íþrótt og frægð, undu svo glaðir við sitt?

6.  Hver leikur leið­toga „Stór­fjöl­skyld­unnar“ í þriðju seríu af Ófærð sem nú er í gangi?

7.  Í vin­sælum sjón­varps­s­er­íum þessi miss­erin segir frá Roy-fjöl­skyld­unni og bægsla­gangi hennar við að reka fjöl­miðla­fyr­ir­tæki sitt. Hvað heita þætt­irnir?

8.  Hvaða dýr ber lat­neska fræði­heitið felis catus?

9.  Ragn­hildur Helga­dóttir varð önnur konan á Íslandi til að gegna ráð­herra­emb­ætti. Það var árið 1983. Í hvaða stjórn­mála­flokki var Ragn­hildur?

10.  Tveir þing­menn á Alþingi Íslend­inga eru nafnar — það er, heita sömu tveimur skírn­ar­nöfn­unum, þótt föð­ur­nöfn þeirra séu ekki hin sömu. Hvað heita þessir þing­menn?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Utan­rík­is­ráð­herra Sov­ét­ríkj­anna.

2.  Bensín eða stein­olía.

3.  Ítalía.

4.  San Marino.

5.  „Feðurnir frægu.“ Einnig má nefna „frjáls­ræð­is­hetj­urnar góðu“. 

6.  Egill Ólafsson.

7.  Succession.

8.  Heim­il­is­kött­ur­inn.

9.  Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

10.  Þeir heita báðir Guð­mundur Ingi. Annar er Guð­brands­son og situr á þingi fyrir VG, hinn er Krist­ins­son og er í Flokki fólks­ins.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er tekin í Víetnam-stríð­inu eins og aug­ljóst má vera af þyrlu­gerð­unum og bún­aði dát­anna.

Neðri myndin er af Ellý Vil­hjálms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár