575. spurningaþraut: Látum Smerdjakov liggja milli hluta en hvað með bræðurna Dmitrí, Ívan og Alexei?

575. spurningaþraut: Látum Smerdjakov liggja milli hluta en hvað með bræðurna Dmitrí, Ívan og Alexei?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn á mynd­inni hér að ofan? Hann var ungur að árum þegar myndin var tekin og hann var lítt kunnur opin­ber­lega nema í sínum hópi. En það breytt­ist ræki­lega þegar hann var kom­inn á miðjan aldur.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver er fjórða fjöl­menn­asta borg í Evrópu?

2.  Kara­korum hét borg sem stofnað var upp úr 1220 eftir Krist og óx úr grasi með ógn­ar­hraða, enda varð hún höf­uð­borg í splunku­nýju heims­veldi. Borgin var að vísu ekki höf­uð­borg heims­veld­is­ins nema í nokkra ára­tugi en var þó býsna stöndug góða hríð. Nú hefur hún lengi verið lít­il­fjör­leg og íbúa­talan lág. En hverjir voru það sem reistu Kara­korum og gerðu um skeið að heims­borg?

3.  Haustið 1870 sagði leið­togi Frakka af sér eftir að hafa beðið auð­mýkj­andi ósigur í stríði við Prúss­land og önnur þýsk ríki. Hvað nefnd­ist þessi franski leið­togi?

4.  Milli hvaða tveggja þétt­býl­is­staða við strönd­ina á Íslandi er lengst óbyggð strand­lengja?

5.  Hvað er minnsta ríki heims­ins að flat­ar­máli?

6.  Ungur enskur fót­bolta­maður að nafni Phil Foden vakti athygli í Íslands­heim­sókn í fyrra, vegna sótt­varn­ar­brota, en ann­ars vekur hann nú yfir­leitt mesta athygli fyrir leikni sína með fót­bolt­ann. Með hvaða liði á Englandi leikur hinn ungi Foden?

7.  Hvað hét kansl­ari Þýska­lands síð­ustu sjö árin áður en Merkel tók við?

8.  Hver lék Rachel Green í sjón­varps­þátt­unum Friends?

9.  En hver lék Carrie Bradshaw í þátt­unum Sex in the City?

10.  Dmitri, Ívan og Alexei eru frægir bræður í skáld­sögu einni. Hvað er eft­ir­nafn þeirra?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sankti Pét­urs­borg.

2.  Mongólar.

3.  Napóleon þriðji. Númerið verður að vera rétt.

4.  Víkur í Mýrdal og Hafnar í Horna­firði. Það var að minnsta kosti það svar sem ég var að leita að. En mín snjalla systir Elísabet hefur bent mér á að lengra er efa­laust eftir strönd­inni milli Súða­víkur og Drangs­ness. Það er því rétt líka!

5.  Vatíkanið.

6.  Manchester City.

7.  Schröder.

8.  Jennifer Aniston.

9.  Sarah Jessica Parker.

10.  Karamazov.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Kristján Eldjárn síðar for­seti Íslands.

Á neðri mynd­inni er Svan­hildur Hólm, fjöl­miðla­kona, aðstoð­ar­maður ráð­herra og nú síð­ast fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár