562. spurningaþraut: Hver er frægasti og ríkasti afkomandi danskra innflytjenda nú um stundir?

562. spurningaþraut: Hver er frægasti og ríkasti afkomandi danskra innflytjenda nú um stundir?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er stúlkan á mynd­inni hér að ofan.

***

1.  Á dög­unum vakti athygli þegar fót­bolta­fram­herj­inn Salah hafði skorað í 10 leikjum í röð. Það var þó fjarri met­inu sem fót­bolta­maður einn setti leik­tíð­ina 2013-2014 þegar hann skor­aði í 21 leik í röð. Hvaða fót­bota­karl var svona dug­legur að skora?

2.  Hver skrif­aði skáld­sög­una Íslands­klukk­una?

3.  Önnur skáld­saga, víð­fræg, heitir Lord of the Flies, eða Flugna­höfð­ing­inn og var höf­undur hennar William Golding. Um hvað er sú bók í sem ein­földustum dráttum?

4.  Hvað er Leynd­ar­mál Viktoríu?

5.  Garðinn hennar vökt­uðu sex ... sex hverjir?

6.  Árið 1054 varð afar afdrifa­ríkur atburður í krist­in­dómnum. Hvað gerð­ist?

7.  Sidse Babett Knudsen heitir dönsk leik­kona sem kunn­ust er fyrir leik í sjón­varps­þáttum sem heita ...?

8.  Hvar á Íslandi er Árnes­hreppur?

9.  Sámsey heitir ein af hinum minnstu eyjum við Dan­merk­ur­strendur. Um 1900 flutt­ust ung hjón þaðan, John og Ida Jørg­en­sen, til Banda­ríkj­anna og eign­uð­ust son­inn Theodore Jorg­en­sen árið 1917. Theodore eign­að­ist son­inn Ted Jorg­en­sen árið 1944 og hann eign­að­ist svo líka son í fyll­ingu tím­ans með unn­ustu sinni Jacklyn Gise. Jacklyn skildi hins vegar á end­anum við Ted og gift­ist öðrum manni sem ætt­leiddi son hennar. Undir sínu nýja nafni varð son­ur­inn einn fræg­asti og rík­asti maður heims­ins. Hver er þessi for­ríki son­ar­son­ar­dótt­ur­sonur Sáms­eyjar“?

10.  Við hvaða haf stendur rúss­neska borgin Vla­di­vostok?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fugl er á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Messi.

2.  Halldór Laxness.

3.  Sam­skipti innan drengja­hóps sem verður inn­lyksa á eyði­eyju. Meira þarf í raun­inni ekki.

4.  Und­ir­fata­fram­leið­andi.

5.  Jap­anskir víga­menn. Sjá þennan hlekk.

6.  Full vin­slit urðu með kaþ­ólsku kirkj­unni og grísku rétt­trún­að­ar­kirkj­unni.

7.  Borgen.

8.  Á Ströndum, á Vest­fjörðum, við Húnaflóa — allt rétt.

9.  Jeff Bezos.

10.  Kyrra­hafið. Nákvæmara væri að segja Kínahaf en Kyrra­hafið er alveg nóg.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Hillary Rodham, síðar Clinton.

Á neðri mynd­inni er spói.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár