561. spurningaþraut: Anna, Elísabet, Katrín, María, Viktoría — hver þeirra var EKKI drottning?

561. spurningaþraut: Anna, Elísabet, Katrín, María, Viktoría — hver þeirra var EKKI drottning?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða fána má sjá hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Um miðja 20. öld kom út í nokkrum bindum ævi­saga Árna pró­fasts Þór­ar­ins­sonar og í einu bind­inu lýsti hann m.a. dvöl sinni á til­teknum stað á land­inu og nefnd­ist það bindi: „Hjá vondu fólki.“ Hvar á land­inu bjó þetta meinta „vonda fólk“?

2.  Einn fremsti rit­höf­undur og stílisti þjóð­ar­innar á 20. öld skráði minn­ingar Árna. Hver var sá?

3.  Hvaða ungi íslenski rapptón­list­ar­maður gaf fyrir þrem árum út plöt­una Matador og svo á dög­unum plötu sem hann nefnir Bushido?

4.  Hver var fyrsta konan sem gegndi starfi Þjóð­leik­hús­stjóra á Íslandi?

5.  Hvað heitir hinn umdeildi for­maður yfir­kjör­stjórnar í norð­vest­ur­kjör­dææmi?

6.  Anna, Elísabet, Katrín, María, Viktoría. Konur með þessum fimm nöfnum hafa allar setið í hásæti Englands/Bret­lands sem drottn­ingar í eigin nafni. Sem raun­veru­legir valda­menn, semsé. En reyndar er eitt nafnið fals. Engin kona með því nafni hefur verið drottn­ing þar í landi nema þá sem kona manns­ins síns. Hvað af þessum nöfnum er hér um að ræða?

7.  Hvers kona fugl er álka?

8.  Á hvaða skaga er ríkið Kosovo?

9.  Hvaða banda­ríski tón­list­ar­maður rak í ára­tug (1964-1975) hina til­rauna­kenndu en glað­hlakka­legu rokk­hljóm­sveit The Mothers of Invention?

10.  Hvað heitir nyrsta eyja Íslands?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er sú hin íslenska kona á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Snæ­fells­nesi.

2.  Þór­bergur Þórð­ar­son.

3.  Birnir.

4.  Tinna Gunn­laugs­dóttir.

5.  Ingi Tryggva­son.

6.  Katrín. 

7.  Svart­fugl.

8.  Balkanskaga.

9.  Zappa.

10.  Kol­beinsey.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er fáni Rúss­lands.

Á neðri mynd­inni er Kristín Ing­ólfs­dóttir fyrr­ver­andi rektor Háskóla Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár