563. spurningaþraut: 9 metra langt dýr sem menn útrýmdu á 18. öld

563. spurningaþraut: 9 metra langt dýr sem menn útrýmdu á 18. öld

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða fugla má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Dýra­teg­und ein heitir á fræði­máli Pingu­inus impennis. Hún dó raunar út á fyrri hluta 19. aldar svo ekki getum við skoðað hana í „eigin per­sónu“ ef svo má segja. Hvaða dýr er þetta?

2.  Annað dýr sem líka er útdautt kall­ast á fræði­máli Hydrodamalis gigas, og var því fyrst lýst árið 1741 af þýska land­könn­uð­inum Steller og er dýrið stundum kennt við hann. Þetta var risa­stórt dýr, allt að 9 metra langt og 10 tonn að þyngd. Það var hæg­fara og varn­ar­lítið og innan við ald­ar­fjórð­ungi eftir að vest­rænir veiði­menn fréttu af til­veru dýrs­ins, sem bjó á mjög tak­mörk­uðu svæði, þá var búið að útrýma því gjör­sam­lega. Hvers konar dýr var þetta?

3.  Í hvaða landi heitir höf­uð­borgin Khartúm?

4.  Elbrus heitir fjall eitt í Kákasus-fjall­garð­inum og telst til Rúss­lands. Hvað er til­kall Elbrus til frægðar?

5.  Tímarit eitt kom fyrst út í Banda­ríkj­unum 1892 og var þá viku­blað en varð mán­að­ar­rit ári seinna. Blaðið náði miklum vin­sældum og virð­ingu og heldur enn þeim status. Árið 1916 fór bresk útgáfa að koma út en 1964 kom ítölsk útgáfa, sem sumum mun þykja einna best. Alls er blaðið nú gefið út í 26 löndum en hefur aldrei birst á íslensku. Hvaða blað er þetta?

6.  Hvað heitir öfl­ug­asta fót­boltaliðið í Kata­lóníu á Spáni?

7.  Á íslensku eru bæði smá­fugl og stór flugu­teg­und ein kennd við til­tekna teg­und fer­fætlinga sem alþekkt er í land­inu. Hvaða fer­fætlingar eru það?

8.  Monte Carlo heitir aðal­sveit­ar­fé­lagið í til­teknu smá­ríki. Ríkið heitir ...?

9.  Hvaða hljóm­sveit gaf á sínum tíma út plöt­urnar Voulez-Vous, Super Trouper og The Visitors?

10.  Við hvað starfar Kristrún Frosta­dóttir?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Geir­fuglar.

2.  Sækýr. „Selir“ dugar því miður ekki, enda eru selir og sækýr alls ekki skyldar teg­undir.

3.  Súdan.

4.  Elbrus er hæsta fjall Evrópu.

5.  Vogue.

6.  Barcelona.

7.  Hross. Hér er vísað til hrossa­gauks og hrossa­flugu.

8.  Monaco.

9.  ABBA.

10.  Hún er þing­maður.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru geir­fuglar.

Á neðri mynd­inni er Oprah Winfrey.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár